Listaverkefninu RÓT 2015 lýkur í dag kl. 15-17 í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, eftir tveggja vikna ferli, sjö vinnudaga og þátttöku 31 skapandi einstaklings. Þar með er sýningin fullunnin og verður opnuð formlega.
Listaverkefninu RÓT 2015 lýkur í dag kl. 15-17 í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, eftir tveggja vikna ferli, sjö vinnudaga og þátttöku 31 skapandi einstaklings. Þar með er sýningin fullunnin og verður opnuð formlega. Opnunin í dag er sú seinni af tveimur og á henni verður síðasti hópur þátttakenda önnum kafinn við að fullvinna síðasta verkið á sýninguna. RÓT sameinar listamenn úr ólíkum listgreinum í gerð verka sem eru þróuð á staðnum með ólíkum áherslum. Hver dagur hófst á hugflæði þar sem allar hugmyndir voru viðraðar þangað til rótin fannst, eins og það er orðað í tilkynningu. Hugmyndin að verkefninu kviknaði einn vetrardag á sameiginlegri vinnustofu þriggja listamanna; Freyju Reynisdóttur, Karólínu Baldvinsdóttur og Jónínu Bjargar Helgadóttur. Þær langaði að nýta margföldunaráhrifin sem gott samstarf framkallar.