Haukur Holm, fréttamaður hjá RÚV, svarar spurningum um eftirlæti fjölskyldunnar þessa vikuna.
Fjölskyldumeðlimirnir eru: Haukur Holm, Guðný Lára Ingadóttir og 16 ára sonur þeirra, Starri Holm.
Þátturinn sem allir geta horft á? Graham Norton og svo auðvitað Simpsons.
Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Sítrónukjúklingur Guðnýjar, en svo sakna ég fiskibollanna hennar mömmu.
Skemmtilegast að gera saman? Ferðalög virka alltaf.
Borðið þið morgunmat saman? Á virkum dögum eru allir hálfsofandi á þönum, þannig að sameiginlegur morgunverður er fjarlæg hugmynd. En um helgar er oft síðbúinn sameiginlegur morgunverður.
Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Horfum á eitthvað í sjónvarpinu sem samkomulag er um. Annars finnst okkur feðgum fínt að spila á gítar, en þá þurfum við að vera hvor í sínu herberginu og húsmóðirin vill helst ekki vera í heyrnarfæri.