Vefsamfélag Þurfa klárar og skapandi konur að vera óaðfinnanlegar líka?
Vefsamfélag Þurfa klárar og skapandi konur að vera óaðfinnanlegar líka?
Refinery29 er nýleg viðbót í lífsstílsvefsíðuflóru alnetsins en yfirlýst markmið aðstandenda hennar er að vera „Besta nýja vefsamfélagið fyrir klárar, skapandi og fágaðar konur hvar sem er í heiminum.

Refinery29 er nýleg viðbót í lífsstílsvefsíðuflóru alnetsins en yfirlýst markmið aðstandenda hennar er að vera „Besta nýja vefsamfélagið fyrir klárar, skapandi og fágaðar konur hvar sem er í heiminum.“

Hvort aðstandendum vefsíðunnar tekst það skal látið liggja milli hluta en vefsíðan lumar á ýmsum áhugaverðum greinum um tísku, ferðalög, heilsu, kynlíf, vinnumarkaðinn og stjórnmál.

Maður gæti þó þurft að grúska og „skrolla“ örlítið niður til að finna efni sem hæfir klárum og skapandi konum, eins og vefsíðan á að vera hönnuð fyrir, því að á síðunni eru fullmargar greinar um hvernig venjulegar konur geta hermt eftir Katy Perry, fengið fallegra hár, grennst um nokkur kíló, málað sig til að virðast yngri eða hvaða snyrtivörur þær verði að kaupa.