Orri Sigurjónsson
Orri Sigurjónsson — Skapti Hallgrímsson
Þróttur endurheimti toppsæti 1. deildar karla þegar liðið sigraði BÍ/Bolungarvík 4:1 á Ísafirði á laugardag.
Þróttur endurheimti toppsæti 1. deildar karla þegar liðið sigraði BÍ/Bolungarvík 4:1 á Ísafirði á laugardag. Þróttur hefur nú eins stigs forskot á Víking Ólafsvík, sem skaust á toppinn um stund í gær, en Djúpmenn eru á botninum, átta stigum frá öruggu sæti. Í hinum leik laugardagsins vann Þór dramatískan 3:2 sigur á Fram í Úlfarsárdal. Norðanmenn komust í 2:0 en Framarar jöfnuðu leikinn. Allt stefndi í jafntefli þegar Orri Sigurjónsson skoraði sigurmark Þórsara í uppbótartíma og tryggði þeim 3:2 sigur. Þórsarar eru fimm stigum á eftir Ólsurum en Framarar sitja sem fastast í 10. sæti deildarinnar.