Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samtals 133 farþegaþotur lentu eða hófu sig til flugs frá Keflavíkurvelli á laugardaginn var, eða að meðaltali fimm og hálf þota á klukkustund. Það er ein þota á 11 mínútna fresti, að því er lesa má úr tölum um komur og brottfarir á vef flugvallarins.
Mikið annríki var í móttökusal Keflavíkurflugvallar um fjögurleytið síðdegis á laugardag þegar blaðamaður Morgunblaðsins var þar á ferð. Streymdu farþegar út um komuhliðið. Samtals 28 leigubílar biðu þá á hlaðinu vestur af flugstöðinni. Norður af flugstöðinni voru á þriðja tug hópferðabifreiða, þar með talið margar af stærstu gerð. Sagðist einn bílstjórinn ætla að fara með hóp í níu daga hringferð um landið. Breiður af bílaleigubílum voru þar á planinu og var ein fjölskyldan að koma sér fyrir í stórum húsbíl.
Slík er umferðin orðin á Keflavíkurflugvelli yfir háannatímann að á vefsíðu vallarins hefur verið birt tilkynning þar sem brýnt er fyrir farþegum að mæta tímanlega vegna mikillar umferðar.