Viðgerðir Verið er að ljúka viðgerð svonefnds Skarfagarðs við Sundahöfn eftir tjón á garðinum vetur.
Viðgerðir Verið er að ljúka viðgerð svonefnds Skarfagarðs við Sundahöfn eftir tjón á garðinum vetur. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ísak Rúnarsson isak@mbl.is „Í þessu roki sem geisaði hér frá október og alveg fram í maí síðasta vetur fór þessi garður dálítið illa og nauðsynlegt að endurbyggja hluta hans.

Ísak Rúnarsson

isak@mbl.is

„Í þessu roki sem geisaði hér frá október og alveg fram í maí síðasta vetur fór þessi garður dálítið illa og nauðsynlegt að endurbyggja hluta hans. Við leggjum í það rétt liðlega þrjátíu milljónir en við höfum lagt metnað í það að Skarfagarðurinn sé aðgengilegur fyrir fólk,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.

Þrátt fyrir að Sundahöfn sé fyrst og fremst vöruflutningasvæði þá er mikill fjöldi fólks sem leggur leið sína þangað og þá sérstaklega að Skarfagarðinum og Skarfaklettinum en Gísli segir að um leið og vel sé gengið frá umhverfinu sæki fólk á svæðið.

Skarfagarðurinn var lagður fyrir rúmlega áratug og er um 320 metra langur og liggur í átt að Viðey en garðurinn hefur það hlutverk að verja Sundahöfn fyrir ölduróti.

Leiðin út í vitann sem stendur á við enda garðsins var nánast orðin ófær og þrátt fyrir að veðrið hafi ekki áhrif á stærra grjótið geti sjórinn skemmt malbikið og undirlagið í slíku veðri. Nú vinni menn að því að endurnýja efsta undirlag garðsins ásamt því að malbika á ný.

Aukið álag á starfsfólk

Gísli segir að slæmt veður eins og gerði síðasta vetur hafi ekki aðeins áhrif á mannvirki heldur setji það aukið álag á starfsfólk. Hann segir það ekki vera auðvelt að sigla um flóann á bátum né að fara um borð í skip í slíku veðri.

Engin óhöpp urðu í vetur en Gísli segir starfsfólk hafnarinnar margreynt og öllum hnútum kunnugt.