Viktor Már Axelsson fæddist 11. september 1989. Hann lést 12. ágúst 2015. Útför hans fór fram 21. ágúst 2015.

Það er þyngra en tárum taki að hugsa til þess að elsku Viktor sé ekki lengur meðal okkar, farinn úr lífinu sem hefur svo mörg tækifæri.

Til ljóssins heima lífið snýr,

og lýsir dagsverk þitt.

Drottinn sem þér bústað býr,

barnið þekkir sitt.

Í margra huga er minning skær

og mynd í hjarta geymd.

Stöðugt okkur stendur nær,

stund sem ekki er gleymd.

Nú er komið að kveðju stund,

klökkvi hjartað sker.

Nú genginn ertu Guðs á fund,

sem góður líknar þér.

Lífið er tímans ten ingaspil,

tilgangur þess virðist falinn,

en gott er að vita að gerð eru skil,

og gengin spor vandlega talin.

Enginn veit hvorki um stað eða stund,

hvar stöðvast hin mannlega klukka,

og þegar réttlætis reiknað er pund,

þá ræður ei hending né lukka.

(Kristján Runólfsson)

Blessuð sé minning elsku Viktors okkar.

Kristín Axelsdóttir

(Didda amma).