Útnefning Frá athöfninn í Gamla Kópavogsbænum í gær, frá vinstri Theodór Júlíusson heiðurslistamaður 2014, Jón Adolf Steinólfsson bæjarlistamaður, Ragnar Th. Sigurðsson heiðurslistamaður 2015, Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Útnefning Frá athöfninn í Gamla Kópavogsbænum í gær, frá vinstri Theodór Júlíusson heiðurslistamaður 2014, Jón Adolf Steinólfsson bæjarlistamaður, Ragnar Th. Sigurðsson heiðurslistamaður 2015, Karen E. Halldórsdóttir, formaður lista- og menningarráðs, og Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi.
Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari hefur verið útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar í ár. Þá hefur Jón Adolf Steinólfsson myndhöggvari verið útnefndur bæjarlistamaður.

Ragnar Th. Sigurðsson ljósmyndari hefur verið útnefndur heiðurslistamaður Kópavogsbæjar í ár. Þá hefur Jón Adolf Steinólfsson myndhöggvari verið útnefndur bæjarlistamaður. Lista- og menningarráð tilkynnti þetta við hátíðlega athöfn í Gamla Kópavogsbænum í gær.

Í frétt frá Kópavogsbæ segir að með vali á heiðurslistamanni sé verið að heiðra listamann fyrir ævistarf. Ragnar hefur starfað sem atvinnuljósmyndari í meira en þrjátíu ár. Hann er einkum þekktur fyrir náttúruljósmyndir sínar og hefur tekið myndir á norðurheimskautssvæðinu í áratugi. Ragnar hélt sýningu á myndum sínum í Gerðarsafni fyrr á árinu í tengslum við sýningu blaðaljósmyndara og styrkti endurhæfingarmiðstöðina Ljósið um ágóða af sölu verka sem seldust í framhaldinu hjá ljósmyndastúdíói hans Arctic-Images.

Jón Adolf var valinn úr hópi umsækjenda um stöðu bæjarlistamanns en auglýst var eftir umsóknum í vor. Tilgangurinn með vali á bæjarlistamanni er að fá öflugan listamann til að sinna menningarfræðslu í Kópavogi á þessu og næsta ári. Jón Adolf hefur sinnt listsköpun sinni í áratugi, tekið þátt í tugum samsýninga og haldið fjölmargar einkasýningar.

Stefnt er að því að í Gamla Kópavogsbænum verði haldin sýning næsta sumar á verkum þeirra grunnskólanema í Kópavogi sem Jón Adolf mun starfa með í vetur og kenna tréútskurð og jákvæða hugsun.