Bókfært virði eigna slitabús Kaupþings nam 838 milljörðum króna í lok júní. Eignarnar jukust um 38 milljarða á fyrri helmingi ársins eða um 4,7%. Mælt í evrum jókst verðmæti eignasafnsins um 507 milljónir eða um 9,8%.

Bókfært virði eigna slitabús Kaupþings nam 838 milljörðum króna í lok júní. Eignarnar jukust um 38 milljarða á fyrri helmingi ársins eða um 4,7%. Mælt í evrum jókst verðmæti eignasafnsins um 507 milljónir eða um 9,8%. Hrein virðisbreyting eigna var jákvæð á tímabilinu og nam 44,4 milljörðum króna.

Heildarfjárhæð samþykktra og umþrættra krafna í kröfuskrá nam 2.806 milljörðum króna í lok júní og lækkaði um rúmlega 19 milljarða frá áramótum.