Verðlaun Harri, vinningshafi í Bókaverðlaunum barnanna, sem líka heldur á verðlaunum Patriciu, og verðlaunahafar Sumarlesturs, þær Ísold og Hólmfríður, ásamt Sigríði Gunnarsdóttur barnabókaverði og Aðalsteini Ásbergi.
Verðlaun Harri, vinningshafi í Bókaverðlaunum barnanna, sem líka heldur á verðlaunum Patriciu, og verðlaunahafar Sumarlesturs, þær Ísold og Hólmfríður, ásamt Sigríði Gunnarsdóttur barnabókaverði og Aðalsteini Ásbergi.
Þátttakendurnir sjötíu í Sumarlestri Bókasafns Seltjarnarness létu sig ekki muna um að lesa 112 bækur, eða 10.528 blaðsíður, í sumar. Í lok átaksins var haldin uppskeruhátíð þar sem börnin voru verðlaunuð fyrir góðan árangur.
Þátttakendurnir sjötíu í Sumarlestri Bókasafns Seltjarnarness létu sig ekki muna um að lesa 112 bækur, eða 10.528 blaðsíður, í sumar. Í lok átaksins var haldin uppskeruhátíð þar sem börnin voru verðlaunuð fyrir góðan árangur. Hátíðin fór fram á Bókasafnsdeginum 8. september og við sama tækifæri voru afhent verðlaun í samstarfsverkefni Bókasafns og Grunnskóla Seltjarnarness, Bókaverðlaunum barnanna, en þar velja lesendur á aldrinum 6-12 ára bækur sem þeim finnast skemmtilegastar. Verðlaunahafar í sumarlestrinum voru þær Hólmfríður Erla Ingadóttir og Ísold Anna Hjartardóttir og vinningshafar í Bókaverðlaunum barnanna Harri Hreinsson og Patricia Dúa Thompson. Gestur uppskeruhátíðarinnar var rithöfundurinn og tónlistarmaðurinn Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, sem skemmti börnum og fullorðnum með tali og tónum.