Vænn Makríllinn var óvenju stór.
Vænn Makríllinn var óvenju stór.
Yfir 30.000 tonn af makríl hafa borist til Neskaupstaðar á þessari vertíð . Henni fer senn að ljúka en 650 tonnum af frystum makríl var landað úr Hákoni EA á Neskaupstað í fyrradag.
Yfir 30.000 tonn af makríl hafa borist til Neskaupstaðar á þessari vertíð . Henni fer senn að ljúka en 650 tonnum af frystum makríl var landað úr Hákoni EA á Neskaupstað í fyrradag. Gert er ráð fyrir að farmurinn sé meðal þeirra síðustu sem landað verður á vertíðinni. Af þeim 30.000 tonnum sem hafa borist, var rúmlega 19.200 tonnum landað til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Greint er frá þessu á fréttaveitunni kvotinn.is