Rakel Steinarsdóttir myndlistarkona opnaði í gær sýningu á nýrri innsetningu sinni í Studio Stafni og er efniviður Rakelar litrík föt barna hennar, skv. tilkynningu.
Rakel Steinarsdóttir myndlistarkona opnaði í gær sýningu á nýrri innsetningu sinni í Studio Stafni og er efniviður Rakelar litrík föt barna hennar, skv. tilkynningu. Rakel byggir gjarnan verk sín á innsetningum í rými þar sem umfjöllunarefnið er ýmiss konar hversdagslegir hlutir sem eru hluti af ferli eða hringrás sem er skráð eða varðveitt og sett í annað samhengi. Verkin eru því oftast tengd tíma og jafnvel minningum, að því er fram kemur í tilkynningu.