Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt að verða við erindi Heilsuvinjar Mosfellsbæjar um framleiðslu og dreifingu fjölnota innkaupapoka á öll heimili í Mosfellsbæ. Ákveðið hefur verið að pokunum verði dreift helgina eftir dag íslenskrar náttúru þann 16.
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt að verða við erindi Heilsuvinjar Mosfellsbæjar um framleiðslu og dreifingu fjölnota innkaupapoka á öll heimili í Mosfellsbæ. Ákveðið hefur verið að pokunum verði dreift helgina eftir dag íslenskrar náttúru þann 16. september næstkomandi. Í frétt frá Mosfellsbæ kemur fram að pokunum fylgi heilsueflandi skilaboð frá Landlæknisembættinu, sem er samstarfsaðili Mosfellsbæjar og Heilsuvinjar í verkefninu um Heilsueflandi samfélag.