Vilborg Harðardóttir (1935 - 2002)
Vilborg Harðardóttir (1935 - 2002)
Sýningin Blaðamaður með myndavél verður opnuð á morgun kl. 15 á Veggnum í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Þar gefur að líta úrval ljósmynda Vilborgar Harðardóttur (1935-2002), sem var blaðamaður Þjóðviljans á árunum 1963-81.

Sýningin Blaðamaður með myndavél verður opnuð á morgun kl. 15 á Veggnum í Myndasal Þjóðminjasafnsins. Þar gefur að líta úrval ljósmynda Vilborgar Harðardóttur (1935-2002), sem var blaðamaður Þjóðviljans á árunum 1963-81. Á þeim tíma höfðu ljósmyndarar ekki sérstaka stöðu í íslenskri blaðamannastétt og því var það í höndum blaðamanna að mynda umfjöllunarefni sitt.

Vilborg fór víða og varpa myndir hennar ljósi á tíðaranda, störf fólks og viðburði, en myndirnar á sýningunni eru frá árunum 1963-1975.

Myndasafn Vilborgar var afhent Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni haustið 2013 og styrkti nefnd um 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna skönnun myndanna. Sýningarhöfundur er Sigurlaug Jóna Hannesdóttir. Fyrirhugað er að sýningin standi til áramóta 2015.