— Morgunblaðið/Þorkell
Dómnefnd hefur skilað umsögn um umsækjendur um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Embættið var auglýst þann 12. júní sl. og bárust alls sjö umsóknir.

Dómnefnd hefur skilað umsögn um umsækjendur um embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur. Embættið var auglýst þann 12. júní sl. og bárust alls sjö umsóknir.

Samkvæmt lögum um dómstóla fór innanríkisráðuneytið þess á leit við dómnefnd að hún léti í té umsögn um hæfni umsækjenda og skilaði hún umsögn sinni þann 1. september sl. Niðurstaða dómnefndarinnar var sú að þrír umsækjenda væru hæfastir til að hljóta skipun í embættið og að ekki væru efni til að gera upp á milli hæfni þeirra, segir í frétt frá ráðuneytinu.

Þeir eru: Arnar Þór Jónsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, Lárentsínus Kristjánsson hæstaréttarlögmaður og Pétur Dam Leifsson, dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Auk þeirra sóttu um embættið þau Berglind Bára Sigurjónsdóttir, skrifstofustjóri umboðsmanns Alþingis, Hafsteinn Dan Kristjánsson, aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis, Stefanía G. Sæmundsdóttir, settur saksóknari, og Stefán Erlendsson, héraðsdómslögmaður og lögfræðingur hjá Vegagerðinni.