Bryndís Kjartansdóttir fæddist 26. júlí 1943 á Söndu á Stokkseyri. Hún lést á hjartadeild Landspítalans við Hringbraut 1. september 2015.

Foreldrar hennar voru Sigríður Nikulásdóttir frá Stokkseyri og Kjartan Þorleifsson frá Einkofa á Eyrarbakka. Systkini Bryndísar eru Ágústa, f. 1947, Halldór Valgeir, f. 1949, Helgi, f. 1950, d. 2010, Svanhvít, f. 1953, Guðbjartur, f. 1957, d. 2011, og Bára, f. 1963.

Karl Arason, eiginmaður Bryndísar, fæddist 14. ágúst 1943. Foreldrar hans voru Ingiríður Guðlaug Nikódemusdóttir frá Sauðárkróki og Ari Jónsson frá Skuld á Blönduósi. Börn Bryndísar eru Sigríður Sigurðardóttir, f. 28.1. 1963, maki Eiríkur Ingimagnsson, saman eiga þau fjögur börn og sjö barnabörn. Kjartan Brynjar Sigurðsson, f. 9.4. 1964, maki Unnur Erla Malmquist, börn þeirra eru tvö og tveir dóttursynir. Birgir Sigurðsson, f. 4.9. 1965, hans maki er Hildur Loftsdóttir en saman eiga þau sex börn og fimm barnabörn. Arnar Þór Ingólfsson, f. 28.5. 1971, maki hans er Unnur Sigurrún Kristleifsdóttir, börn þeirra eru þrjú. Ari Karlsson, f. 15.8. 1978, hans maki er Elfa Scheving Sigurðardóttir og eiga þau einn son, en Ari á fyrir tvær dætur. Guðlaugur Karl Karlsson, f. 30.7. 1980, hans maki er Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir og saman eiga þau tvö börn.

Bryndís var húsmóðir á stóru heimili en vann samhliða ýmis störf. Hún fór ung að vinna í fiski á Eyrarbakka og í Reykjavík og síðan við dósagerð og hjá Ópal. Þá starfaði hún hjá Sláturfélagi Suðurlands í kringum 1970. Frá árinu 1973 til 1978 vann hún meðal annars við uppvask, gangavörslu og ræstingar og var síðustu starfsárin í Fjölbrautaskólanum Breiðholti.

Útför Bryndísar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 11. september 2015, kl. 13.

Ég finn fyrir óendanlegum tómleika og sorg en reyni að hugga sjálfa mig með öllu því sem ég get verið þakklát fyrir, eins og að hafa átt mömmu sem vinkonu. Það er einnig huggun í sorginni að yndislegi lífsförunautur mömmu var hjá henni þegar hún kvaddi. Ég reyni líka að taka á sorginni með yfirvegun og ró eins og mamma gerði í veikindum sínum. Mamma var reyndar alltaf þannig, en samt svo rösk og atorkusöm á meðan hún hafði heilsuna.

Öll heimilisstörfin og áhugamálin vann hún með fjölskylduna í kringum sig og allir fengu að taka þátt í því sem hún var að gera, svo það var ekki sjaldséð að hún sæti með börnunum við handavinnu, að föndra eða sinna einhverju matartengdu.

Eins og við vorum ólíkar, eða töldum það, þá baukuðum við svo margt saman og vorum jafn stórtækar þegar við réðumst saman í slátur, kæfu, berjatínslu, bakstur, prjóna- og saumaskap eða blómaræktun svo eitthvað sé nefnt. Síðan hlógum við eins og bjánar þegar við vorum orðnar þreyttar og svefngalsinn tók yfirhöndina. Ég var samt ekki eins hrifin af kartöfluræktinni sem mamma hafði svo gaman af, en góðar voru þær.

Mamma var ekki bara æðisleg mamma heldur var hún stórkostleg amma og langamma og átti endalausa ást og tíma til að sinna öllum sínum (einnig á meðan hún var útivinnandi), sem síðan gáfu henni af sér þegar hún þurfti á að halda. Mamma gaf sér líka tíma fyrir Helga bróður sinn og fór vítt og breitt með honum á meðan hann lifði.

Þegar Kalli stjúpfaðir minn hætti á sjónum droppuðu hann og mamma oft í kaffi til okkar um helgar. Ég get ekki lýst því hvað mér þótti vænt um það þegar þau birtust, líka þegar þau komu á bak við húsið okkar á góðvirðis dögum. Að þau vildu vera með okkur og hafa áhuga á því sem við vorum að gera.

Sumarið 2004 lést tengdamóðir mín, sorgin fylgdi okkur Eika og Ingimagni til Akureyrar með fellihýsið, þar sem tengdafjölskyldan ætlaði að hittast. Samveran var dýrmæt. Góðviðrið varð til þess að við ílengdumst og við vissum líka að von væri á mömmu, Kalla og Guðbjarti heitnum (móðurbróður mínum) í viku sumarfrí í íbúð þarna.

Þetta var yndislegur tími sem flaug frá okkur. Við urðum eftir á föstudeginum þegar þau fóru heim.

Í eftirmiðdaginn daginn eftir birtust mamma og Kalli skyndilega. Þau höfðu ákveðið þá um morguninn að fara aftur norður og vera með okkur í fellihýsinu. Við urðum jafnglöð og við vorum undrandi. Þessi minning er lítið brot af öllum stundunum sem við mamma áttum saman í meira en hálfa öld.

Ég veit að mamma verður meira og minna með mér í framtíðinni við daglegar sem og aðrar athafnir, bara í gær sló það mig tvisvar að ég þyrfti að hringja í hana.

Elsku mamma mín, takk fyrir allt.

Sigríður Sigurðardóttir (Sirrý).

Eins og gullhörpuljóð,

eins og geislandi blær,

eins og fiðrildi og blóm,

eins og fjallalind tær,

eins og jólaljós blítt,

eins og jörðin sem grær,

lifir sál þín í mér,

ó þú systir mín kær.

Þú varst mildi og ást

og þitt móðerni bar

við sinn líknsama barm

dagsins lifandi svar:

allt sem grét, allt sem hló,

átti griðastað þar

- jafnvel nálæð þín ein

sérstök náðargjöf var.

Hversu þreytt sem þú varst,

hvað sem þrautin var sár.

þá var hugur þinn samt

eins og himinninn blár:

eins og birta og dögg

vour bros þín og tár.

Og nú ljómar þín sól

bak við lokaðar brár.

(Jóhannes úr Kötlum)

Þín systir,

Svanhvít.

Elsku amma, nú ertu farin frá mér. Elsku amma, þú ert ekki lengur hjá mér. Elsku amma mín, 72 ára, er farin. Svo ung og falleg að innan sem utan. Ef þú átt eftir að sjá þetta í himnaríki reyndu þá að muna, þegar þú varst að vaska upp og ég var að búa til sjeik og skálin splundraðist í gólfið og þér brá svo, þegar við bjuggum saman. Reyktur fiskur, kjötfars, ís, kjötsúpan, sögurnar, lagið okkar, Einu sinni á ágústkvöldi og það allra mikilvægasta, lífið. Ég elska þig amma.

Þín,

Andrea Edda

Guðlaugsdóttir

Elsku amma mín.

Það er sárt að kveðja þig og erfitt að koma orðum að því sem mig langar að segja þér. Mig langar að þakka þér fyrir allar þær stundir sem við áttum saman. Þær eru mér mjög dýrmætar.

Þegar ég hugsa til baka er mér minnisstætt hvað ég sótti mikið í að fá að gista þegar ég kom í Hrafnhólana til ykkar afa, man eftir öllu suðinu ef svarið var nei. Við vorum svo mörg að það var ekki alltaf hægt að segja já, en mjög oft var það samt þannig. Þið afi áttuð yfirleitt til apafóður (cocoa pops) í morgunmat, það fannst mér æði og ef það var ekki til var farið út í búð og það keypt. Í gær fór ég í búðina og keypti mér apafóður og núna sit ég og borða það og hugsa til þín.

Ég kem alltaf til með að hugsa til þín þegar ég sé apafóðrið. Ömmur og afar mega sko spilla barnabörnunum. Það var svo gaman hjá þér því það var svo mikið um að vera og margt sem við fengum að dunda okkur með, eins og handavinnu, að lita, perla eða horfa á barnaefni. Þú varst alltaf með eitthvað á prjónunum og afi var oft á sjónum. Þú áttir þvílíkt magn af húfum, vettlingum og ullarsokkum sem við barnabörnin tókum að okkur að selja fyrir þig, gömlu konuna, en samt varstu rétt um fimmtugt. Við gengum í hús og seldum grimmt því þetta var svo ódýrt.

Ég man að ég hugsaði svo oft: af hverju selur amma þetta ekki dýrara? En eflaust voru margir þér þakklátir fyrir það því þú klæddir margar fingur og tær og varst alltaf svo hugulsöm og góð. Eftir að við barnabörnin urðum eldri og hættum að selja vörurnar fyrir þig nutum við og börnin okkar góðs af vörunum þínum ásamt Rauða krossinum.

Ég á eftir að sakna þín endalaust mikið, amma mín. Ég elska þig.

Þitt barnabarn,

Bergdís Heiða.

Elsku amma mín er fallin frá. Það eru engin orð sem geta lýst því hvernig mér líður núna. Ég á eftir að sakna þess að hitta hana, að setjast niður og spjalla við hana um allt og ekkert, föndra og eiga með henni gæðastundir.

Hún var gullperlan mín. Alltaf svo hress og skemmtileg og með húmorinn á réttum stað. Það var gaman að prjóna með henni og að vera í sláturgerðinni með henni og mömmu því það var alltaf fjörugt og skemmtilegt.

Þegar við fjölskyldan komum í heimsókn til ömmu og afa var alltaf tekið svo vel á móti okkur. Og þau voru svo dugleg að koma í heimsókn til okkar. Mér þótti einstaklega vænt um það.

Hvíldu í fríði, elsku amma mín. Ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið. Þitt barnabarn,

Þuríður Elírós (Tóta).

Elsku amma mín.

Að skrifa minningarorð um þig er eitt af því sem ég bjóst ekki við að þurfa að gera svona fljótt. Ég vildi svo sannarlega eiga þig lengur, búa til fleiri minningar með þér og fá að sjá þig brosa og hlæja.

Ég var mjög lánsöm, elsku amma mín, að hafa búið í ykkar afakoti fyrstu árin mín og lánsöm hversu traustar og góðar vinkonur við vorum allt til enda.

Ég var langt í frá að vera þér og afa auðveld, þið 36 ára þegar ég kom inn í líf ykkar. Þið sjálf með lítið barn, hann Ara ykkar og stuttu síðar kom Gulli ykkar, svo það var sannarlega mikið líf og fjör í ykkar koti út af öllu sem okkur datt í hug að gera og þú sagðist verða hoppandi reið ef við hættum ekki.

Það var þó ekki fyrr en við vorum orðin fullorðin, að fagna 60 ára afmæli ykkar afa, að við fengum loksins að sjá þig hoppa án þess að þú værir reið, heldur með bros á vör og við hlátur afkomenda þinna. .

Það vantaði ekki, elsku amma mín, hversu barnvænt heimili ykkar afa var, enda ófá skipti sem það voru börn í ykkar fallega koti, sem er í sjálfu sér ekkert skrítið því það var gott að vera í ykkar faðmi.

Umhyggju og ástúð þína

okkur veittir hverja stund.

Ætíð gastu öðrum gefið

yl frá þinni hlýju lund.

Gáfur prýddu fagurt hjarta,

gleðin bjó í hreinni sál.

Í orði og verki að vera sannur

var þitt dýpsta hjartans mál.

(Ingibjörg Sigurðardóttir)

Elsku hjartans afi minn og aðrir ástvinir mínir, ég votta ykkur mína dýpstu samúð.

Elsku hjartans amma, nafna og vinkona mín, ég kveð þig með söknuði í hjarta. Eins og áður; bless fallega mín, ég elska þig. Þín,

Bryndís og fjölskylda.

Elsku hjartans Bryndís mín, mér finnst erfitt að trúa því að eiga ekki eftir að kíkja við í Fífuselinu í kaffibolla og spjall en hann drekkum við síðar á öðrum stað sem liggur fyrir okkur öllum að fara til. Það var dásamlegur tími þegar við vorum nágrannar í Hrafnhólunum og sá mikli vinskapur sem myndaðist milli fjölskyldna okkar er og verður dýrmætur alla tíð.

Þegar ég heimsótti þig á spítalann um daginn bjóst ég ekki við að það yrði kveðjustund, en nú er ég óendanlega þakklát fyrir að hafa drifið mig.

Já, það eru margar dásamlegar minningar sem ég get yljað mér við, elsku vinkona mín, og ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Takk fyrir allt sem þú varst mér og börnunum mínum.

Elsku Kalli, Sirrý, Biggi, Kjartan, Arnar, Ari, Gulli og fjölskyldur, guð gefi ykkur öllum styrk í ykkar miklu sorg en minningin um dásamlega konu mun lifa í hjörtum okkar alla tíð .

Guð blessi minningu Bryndísar, takk fyrir allt elsku vinkona.

Kveðja,

Sigrún Sigurðardóttir.

HINSTA KVEÐJA

Hvíl þú í ró við lands þíns ljósa barm,
ó ljúfi vin!
Bros þitt er geymt og – bak við þyngstan harm
er bjartast skin.
Þakklát og bljúg sem blóm, er hneigja sig,
við breiðum krónu lífsins yfir þig.
(Jóhannes úr Kötlum)
Sigrún Ösp Sigurjónsdóttir.