Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir, leikmaður Selfoss, sló í gegn á síðustu leiktíð í Olís-deild kvenna. Hún lék lykilhlutverk í sínu liði og uppskar sæti í íslenska landsliðinu þar sem hún vakti verðskuldaða athygli í leikjum liðsins.
Hrafnhildur Hanna skoraði flest mörk í Olís-deild kvenna á síðasta keppnistímabili.
Eftirtaldir leikmenn skoruðu yfir 100 mörk:
Hrafnhildur Þrastard., Self. 159
Kristín Guðmundsdótir, Val 149
Marija Gedroit, Haukum 144
Patricia Szölösi, Fylki 133
Ester Óskarsdóttir, ÍBV 122
Ragnheiður Júlíusd., Fram 122
Vera Lopez, ÍBV 122
Thea Imani Sturlud., Fylki 115
Emma Havin Sardarsd., HK 109
Brynhildur Kjartansd., ÍR 108
Karólína B. Lárud., Gróttu 105
Paula Chirila, KA/Þór 104
Karen H. Díönud., Haukum 103
Laufey Á. Guðmunds., Gróttu 103
Martha Hermannsd., KA/Þór 101