Arnold Schwarzenegger
Arnold Schwarzenegger
Leikarinn og stjórnmálamaðurinn Arnold Schwarzenegger, sem flestir ættu að þekkja úr myndum á borð við The Terminator , Predator , Total Recall , Twins , Last Action Hero og mörgum öðrum stórmyndum, er nú orðaður við þáttastjórn í Celebrity Apprentice .

Schwarzenegger mun leysa af hólmi sjálfan Donald Trump en sá síðarnefndi stefnir á útnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. Sú staða gæti því komið upp að meðan Schwarzenegger sest í sæti þáttastjórnanda Celebrity Apprentice verði Trump að setjast í forsetastólinn í Hvíta húsinu.

Ástæða brotthvarfs Trumps úr Celebrity Apprentice er þó ekki framboð hans til útnefningar Repúblikanaflokksins heldur ósætti milli hans og NBC eftir ummæli Trumps um innflytjendur.