Biskup Íslands hefur skipað séra Elínu Hrund Kristjánsdóttur, sóknarprest á Reykhólum, í embætti sóknarprests í Oddaprestakalli í Suðurprófastsdæmi. Frestur til að sækja um embættið rann út 25. ágúst sl. Embættið veitist frá 1. október nk.

Alls sóttu tíu um embættið. Umsækjendur auk Elínar Hrundar voru séra Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur, Fritz Már Berndsen Jörgensson guðfræðingur, Hildur Björk Hörpudóttir guðfræðingur, Kristinn Snævar Jónsson guðfræðingur, María Rut Baldursdóttir guðfræðingur, María Gunnarsdóttir guðfræðingur, séra Úrsúla Árnadóttir og Viðar Stefánsson guðfræðingur.

Séra Guðbjörg Arnardóttir, sem sat Odda, tók nýlega við embætti sóknarprests á Selfossi.

Í Oddaprestakalli eru þrjár sóknir; Keldnasókn, Oddasókn og Þykkvabæjarsókn. Íbúar í prestakallinu eru rúmlega ellefu hundruð.