Þeir Haukur Heiðar Hauksson hjá AIK, Arnór Ingvi Traustason hjá Norrköping og Hjálmar Jónsson hjá Gautaborg voru allir í hópi bestu leikmanna í sínum stöðum í 24. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu samkvæmt ítarlegri samantekt sem Aftonbladet birti í gær.
Svo skemmtilega vill til að þremenningarnir eru nú í hörðum slag um sænska meistaratitilinn en lið þeirra, Gautaborg, Norrköping og AIK, eru hnífjöfn á toppi deildarinnar þegar fimm umferðunum er ólokið.
Haukur var í þriðja sæti yfir hægri bakverði deildarinnar, Arnór í þriðja sæti yfir vinstri miðjumenn og Hjálmar í sjötta sæti yfir miðverði í samantektinni en þremenningarnir hafa allir verið í stórum hlutverkum í sínum liðum í ár.
vs@mbl.is