Dóra Björk Gústafsdóttir fæddist 10. október 1970. Hún lést á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja 13. september 2015.
Dóra Björk var dóttir Guðnýjar Ingigerðar Óskarsdóttur, f. 4.10. 1948, og Gústafs Adolfs Andréssonar, f. 21.1. 1946. Fósturfaðir hennar var Einar Steingrímsson, f. 22.12. 1951.
Eiginmaður Dóru er Jón Ólafur Daníelsson, f. 31.3. 1967. Börn Dóru Bjarkar eru Daníel Freyr Jónsson, f. 24.5. 1994, Tanja Rut Jónsdóttir, f. 28.5. 1996, Guðný Ósk Jónsdóttir, f. 27.10. 2001, og Einar Þór Jónsson, f. 21.3. 2004, og barnabarnið Svava Björk Daníelsdóttir, f. 18.12. 2012. Systkini Dóru Bjarkar eru Gústaf Adolf Gústafsson, f. 31.1. 1974, Guðrún Erla Gústafsdóttir, f. 18.2. 1972, og Dóra Hrönn Gústafsdóttir, f. 26.8. 1970.
Útförin fer fram frá Landakirkju í dag, 26. september 2015, kl. 13.
Elsku Dóra mín.
Það eru nokkur atriði sem mér eru efst í huga á lífsleið okkar. Dagarnir fjórir þegar börnin okkar fæddust, dagurinn sem Svava Björk kom í heiminn og við litum á hvort annað og gátum ekki annað en hlegið af hamingju, enda orðin amma og afi þótt okkur hafi fundist við aðeins of ung í það. Síðan dagurinn okkar fyrir svo stuttu, sjálfur brúðkaupsdagurinn, en þá hafði ég beðið eftir því að fá þig upp að altarinu í 15 ár því þú játaðist mér jú, á gamlársdag árið 2000. Elsku Dóra mín, þakka þér líka fyrir uppeldið á börnunum okkar fjórum, þau eru vel upp alin og miklir mannvinir eins og þú.
Elsku Dóra mín, ég mun alltaf sakna þín og hlakka til að hitta þig aftur. Ástarkveðja,
Jón Óli.
Takk, elsku mamma, fyrir að vera alltaf til staðar fyrir okkur þegar við þurftum á þér að halda. Þú gast alltaf hjálpað okkur og þú virtist eiga endalausan tíma fyrir okkur. Þú varst svo hlý og góð og manni leið svo vel nálægt þér. Það er svo margs að minnast í lífi okkar en það er okkur mjög ofarlega í huga þegar þú og pabbi fóruð með okkur öll til Tenerife, bæði þegar við fórum með Heimi og fjölskyldu og einnig þegar við fórum með Gunnu og fjölskyldu. Það sem gerði þessar ferðir svo einstakar var að þarna náðum við öll að vera saman án þess að vera trufluð og pabbi þurfti ekki að vera í vinnu. Það var svo ótrúlegt hvað þú náðir að sinna okkur öllum á þinn einstaka hátt þrátt fyrir að vera ekki með þann þrótt sem fólk á að hafa. Við munum alltaf sakna húmorsins góða þegar þú náðir að æsa okkur upp á þinn einstaka hátt og fékkst okkur til að trúa ótrúlegustu hlutum áður en þú leiðréttir það á þinn einstaka hátt. Þegar við höfðum áhyggjur af lífinu þá komst þú með þína hlýju og öryggi og allt varð gott á ný. Þú lést okkur aldrei finna það að þú værir veik. Þú varst algjör hetja, þú varst kletturinn óbifanlegi í lífi okkar.
Elsku mamma okkar, hvíldu þig vel og góða ferð. Við hlökkum svo mikið til að hitta þig aftur. Ástarkveðja,
Daníel Freyr, Tanja Rut,
Guðný Ósk og Einar Þór.
Elsku amma, ég hlakka svo mikið til þegar við hittumst aftur og þú ferð að ofdekra mig á ný. Ástarkveðja,
Svava Björk.
Ég kveð þig með miklum söknuði en jafnframt svo þakklátur fyrir allar góðar minningar sem ég á um þig og okkur sem ég mun ætíð geyma vel í hjarta mér. Ég er svo stoltur af hversu falleg og góð sál þú varst elsku, elsku Dóra mín.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Svo ótal fallegar minningar um þig, kæra systir, leita nú á hugann.
Mér þykir alveg óendanlega vænt um þig og hlakka til að hitta þig aftur á öðrum stað þegar minn tími kemur, á meðan skal ég gera allt sem ég get til að passa upp á gersemarnar þínar. Elska þig og sakna þín.
Hvíldu í friði. Þinn bróðir,
Gústaf (Gústi).
Ég get ekki lýst því hvað ég á eftir að sakna þín mikið, elsku systir mín, nú þegar ég hugsa til baka rifjast upp endalausar hlýjar minningar sem fá mig til að brosa í gegnum tárin. Minningar sem svo gott er að eiga og rifja upp til að lýsa og ylja sér við. Við vorum öll svo náin, fjölskyldurnar náðu svo vel saman, krakkarnir allir á sama reki og gaman að vera til. Við gerðum svo margt saman, elsku systir.
Elsku systir mín, þú verður alltaf til staðar í hjarta mínu, fallegi engillinn minn. Ég vildi óska þess að þú hefðir fengið meiri tíma með okkur öllum en nú ert þú komin á annan stað þar sem þú þjónar fallegu og mikilvægu hlutverki. Við hittumst seinna, elsku besta systir mín, ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið alla ævi því enginn getur komið í þinn stað, ég elska þig endalaust, fallegust.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér.
Skrítið stundum hvernig lífið er.
Eftir sitja margar minningar,
þakklæti og trú.
Þegar eitthvað virðist þjaka mig,
þarf ég bara að sitja og hugsa um þig
þar er eins og að losni úr læðingi
lausnir, öllu við.
Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér.
Og ég veit að þú munt elska mig
og geyma mig og gæta hjá þér.
Þó ég fengi ekki að þekkja þig
þú virðist alltaf geta huggað mig.
Það er eins og þú sért hér hjá mér
og leiðir um mig veg.
Þegar tími minn á jörðu hér
liðinn er og þá ég burtu fer,
þá ég veit að þú munt vísa veg
og taka á móti mér.
(Ingibjörg Gunnarsdóttir.)
Elsku systir, ég skal hjálpa til við að passa alla gullmolana þína.
Sakna þín, þín systir.
Guðrún Erla Gústafsdóttir.
Orð fá því ekki lýst hversu sárt það er að skrifa um þig þessa minningargrein, elsku engill. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért farin frá okkur og það er svo sárt að vita að við eigum ekki eftir að hitta þig aftur og sjá fallega brosið þitt eða stríðnisglottið.
Fyrir tæpum 24 árum var ég svo lánsöm að kynnast þér þegar ég kom inn í fjölskylduna ykkar, þá feimin 16 ára stelpuskjáta. Feimnin var fljót að hverfa þegar ég var farin að venja komur mínar á Smáragötuna enda ekki annað hægt því mikið líf og fjör var á ykkur systkinunum á þessum tíma og voru partíin ófá hjá ykkur á neðri hæðinni. Það sem ykkur datt í hug og er ég nokkuð viss um að þú áttir oft frumkvæðið enda stuðbolti og stríðnispúki fram í fingurgóma og hefur ekki átt erfitt með að ná yngri systkinunum með þér í það sem þér datt í hug. Partístandið gekk yfir og alvara lífsins tók við og börnin bættust við hvert af öðru, 16 börn hjá ykkur fjórum systkinunum á 15 árum, já gullin okkar eru mörg og yndisleg og þau munum við passa vel.
Þú varst með eindæmum hjálpsöm, blíð og góð en alveg hrikalega stríðin og hefur þú líklega hlegið mikið í allri leitinni sem var gerð að umslögunum góðu nokkrum dögum eftir að þú kvaddir, hvernig datt þér í hug að fela þetta þarna? Þetta var samt svo líkt þér. Við erum búin að brosa og hlæja mikið að þessu.
Fyrir krakkana okkar var aldrei neitt mál að fá að gista hjá Dóru, alveg sama hvort þú varst í meðferð eða ekki. Alltaf var pláss fyrir auka gemlinga á heimilið, þú elskaðir að hafa krakkana hjá þér og þau elskuðu að fá að gista.
Ég er svo glöð að þú hafir fengið að upplifa ömmuhlutverkið, Dóra mín, og gat hún litla dásamlega Svava Björk ekki verið heppnari með ömmu og átti hún sko ekki í vandræðum með að vefja þér um fingur sér.
Þú varst svo mikil hetja í þessari baráttu við krabbameinið síðastliðin 9 ár, tókst þessu verkefni af æðruleysi og við vonuðum svo heitt og innilega að þú myndir sigra í þessari baráttu. Í veikindunum þínum var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig þú tókst á hlutunum, reyndir allt til að læknast, já þú varst tilbúin til að ganga alla leið ef það yrði til þess að þú myndir ná bata. Þú ert búin að standa þig svo ótrúlega vel og aldrei nokkurn tímann heyrði ég þig kvarta, undir lokin varstu þó orðin þreytt en samt kvartaðir þú ekki og varst tilbúin að berjast fram á síðasta dag. Þú ert hetja og það er fjölskyldan þín líka, þau hafa staðið sig svo ótrúlega vel síðustu mánuði. Við munum gera allt, allt sem hægt er til þau komist heil út úr þessum harmleik, Dóra mín.
Ég er svo endalaust þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og eiga þig að í þessi ár, elsku engill. Ég veit þú vakir yfir okkur, leiðir okkur og verndar.
Góða ferð á nýjan stað og ég veit að þar sem þú ert núna hefur verið vel tekið á móti þér og nú líður þér aftur vel. Við sjáumst svo aftur þegar minn tími kemur.
Megi Guð styrkja, hugga og umvefja hlýju fjölskyldu og vini Dóru á þessum sorgartímum. Elska þig.
Þín mágkona,
Guðný.
Dóra Björk var einstök í alla staði, hún var hjartahlý með eindæmum, hugsaði vel um sig og sína, var róleg og hlédræg, með hnitmiðaðan húmor og góða nærveru. Einn af kostum hennar, sem kannski ekki allir vissu af, var að henni þótti afskaplega gaman að koma okkur á óvart á sinn einstaka hátt, en í henni leyndist skemmtilegur „stríðnispúki“ sem fékk oft að njóta sín í góðra vina hópi.
Fyrir níu árum greindist Dóra Björk með ristilkrabbamein. Í baráttu við þennan illvíga sjúkdóm lét hún ekki slá sig út af laginu, barðist eins og hetja allan þennan tíma með bjartsýni og æðruleysi að vopni. Dóra var ekkert að tala of mikið um sín veikindi heldur hélt sínu striki eins og sannur baráttujaxl.
En nú ertu, elskuleg mágkona, farin á annan stað til að sinna mikilvægum störfum og þeim munt þú sinna af kostgæfni eins og þér einni er lagið. Á þessum stað munt þú taka á móti okkur öllum þegar fram líða stundir eins og þinn ástkæri eiginmaður og yndislegu börn tala um.
Elsku Jón Óli, Daníel Freyr, Svava Björk, Tanja Rut, Guðný Ósk og Einar Þór, það verða fagnaðarfundir.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens.)
Kæra mágkona, minning þín er ljós í lífi okkar, sjáumst.
Alfreð Halldórsson.
Elsku Dóra mín, þú mikla baráttukona, barðist eins og hetja til síðasta dags og varst alltaf svo jákvæð og dugleg. Við erum öll ótrúlega stolt af þér og ég er heppin að hafa átt þig að. Það var alltaf stutt í húmorinn og grínið hjá þér, mikið hlegið þegar þú varst nálægt og þú áttir svo sannarlega ekki erfitt með að skemmta okkur hinum sem í kringum þig vorum.
Söknuðurinn er mikill en ég mun halda yndislegu minningunum sem við áttum saman á lofti.
Þú verður alltaf í hjarta mínu og ég mun hugsa um þig hvern einasta dag.
Hlakka til að hitta þig aftur þegar minn tími kemur. Elska þig að eilífu.
Hver minning dýrmæt perla
að liðnum lífsins degi
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf sem
gleymist eigi
og gæfa var það öllum er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir)
Þín frænka,
Eygló Dís Alfreðsdóttir.
Okkur fannst leitt að sjá þig svona mikið veika en nú líður þér vonandi betur og fylgist með okkur og gætir okkar.
Nú er ljósið dagsins dvín,
þótt dauðinn okkur skilji,
mér finnst sem hlýja höndin þín
hjarta mínu ylji.
Myndin þín hún máist ei
mér úr hug né hjarta.
Hún á þar sæti uns ég dey
og auðgar lífið bjarta.
Þótt okkur finnist ævin tóm
er ástvinirnir kveðja,
minninganna mildu blóm
mega hugann gleðja.
(Ágúst Böðvarsson)
Við lofum að passa alla fyrir þig, elsku besta Dóra okkar.
Við elskum þig og söknum þín.
Elliði Snær og Rakel Perla.
Við geymum allar þær góðu minningar sem við eigum um þig í hjarta okkar. Takk fyrir að vera okkur alltaf svo góð. Þær eru margar og góðar stundir sem við áttum með þér frá því við vorum litlir guttar heima hjá þér og við vorum að leika við krakkana í playmo, þegar við komum í heimsókn til ykkar til Grindavíkur á meðan þið bjugguð þar, á fótboltamótunum sem við fórum á, já við eigum svo margar góðar minningar um þig, elsku Dóra okkar, og fyrir þær erum við þakklát.
Hún var einstök perla.
Afar fágæt perla,
skreytt fegurstu gimsteinum
sem glitraði á
og gerðu líf samferðamanna hennar
innihaldsríkara og fegurra.
Fáar perlur eru svo ríkulega búnar,
gæddar svo mörgum af dýrmætustu
gjöfum Guðs.
Hún hafði ásjónu engils
sem frá stafaði ilmur
umhyggju og vináttu,
ástar og kærleika.
Hún var farvegur kærleika Guðs,
kærleika sem ekki krafðist endurgjalds.
Hún var vitnisburður
um bestu gjafir Guðs,
trúna, vonina, kærleikann og lífið.
Blessuð sé minning einstakrar perlu.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Við biðjum algóðan Guð um að styrkja fjölskyldu og vini Dóru Bjarkar á þessum erfiðu tímum.
Minning þín lifir. Elskum þig,
Egill Aron, Arnar Smári
og Guðrún Bára.
Þú, hjartans engillinn minn, barðist eins og hetja í níu ár og varst alltaf svo jákvæð en varðst að lokum að láta í minni pokann. Það hefur bara greinilega vantað enn einn fallegan engil í hópinn þarna uppi.
Dóra var yndislegur persónuleiki, hún var má segja allra. Alltaf vildi hún gera allt fyrir alla, alveg sama hvað það var.
Okkar kynni hófust þegar þú fluttir hingað til Eyja með mömmu þinni og systkinum 1982.
Þú varst frekar feimin til að byrja með og ein frægasta setningin þín þá var „ef þú ætlar að fá þér“.
Ég á heilan hafsjó af minningum um okkur og eru þær minningar efni í heila bók.
Minnisstæðast er þegar við vorum alltaf að stelast á Selfoss á djammið, sögðum alltaf að við ætluðum að gista saman en að sjálfsögðu komst upp um okkur. Erum við búnar að hlæja mikið að þessu í gegnum tíðina.
Manstu líka þegar þú varst nýkomin með bílprófið og við á rúntinum á gráu þrumunni, sem afi þinn átti þegar löggan setti bláu ljósin á okkur? Við vorum nýbúnar að kaupa okkur fullt af nammi en við panikkeruðum svo að við hentum namminu út um gluggann á bílnum og „stungum“ lögguna af. En þá var þetta bara hann Pétur lögga aðeins að stríða okkur.
En elsku engillinn minn, nú ætla ég að láta staðar numið en minningarnar um þig mun ég geyma í hjarta mér.
Ég veit að við munum hittast á ný þegar minn tími mun koma.
Elsku Jón Óli, Daníel Freyr, Tanja Rut, Guðný Ósk, Einar Þór, litla ömmugullið Svava Björk og fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk í þessari miklu sorg.
Elsku hjartans engillinn minn, mikið ofboðslega á ég eftir að sakna þín mikið, þú munt alltaf vera í hjarta mínu að eilífu
Guð geymi þig, elsku Dóra mín.
Gulli og perlum safna sér
sumir endalaust reyna
vita ekki að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
Gull á ég ekki að gefa þér
og gimsteina ekki neina
en viltu muna að vináttan er
verðmætust eðalsteina.
(Hjálmar Freysteinsson.)
Þín vinkona,
Þórína Baldursdóttir.
Helga Henrysdóttir.
Þótt ég sé látinn, harmið mig ekki með tárum, hugsið ekki um dauðann með harmi eða ótta. Ég er svo nærri, að hvert eitt tár ykkar snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þegar þið hlæið og syngið með glöðum hug lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu.
(Höf. óþekktur)
Hetjan okkar er farin. Þvílíkt sem hægt er að leggja á eina manneskju í níu ár en aldrei kvartaði hún. Allt í rétta átt og hún að hressast, alltaf jákvæð. En að lokum þurfti hún að lúta í lægra haldi fyrir sjúkdómnum illvíga. Dóra Björk var í stjórn Krabbavarnar í Vestmannaeyjum, tók þátt í fjáröflun fyrir félagið og var dugleg að mæta á fundi og á skrifstofuna meðan heilsan leyfði.
Góða ferð, kæra vinkona, þín verður sárt saknað og þökkum við fyrir góða samveru alla tíð. Fjölskyldunni allri sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur.
F.h. Krabbavarnar Vestmannaeyja,
Ester Ólafsdóttir.