Flóttafólk Irina frá Úsbekistan og sonur hennar komu hingað í ágúst.
Flóttafólk Irina frá Úsbekistan og sonur hennar komu hingað í ágúst. — Morgunblaðið/Ásdís
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Á hverjum degi streymir til landsins fólk frá hinu stríðshrjáða Sýrlandi, Balkanskaganum og öðrum löndum þar sem fátækt og eymd ríkir.

Ásdís Ásgeirsdóttir

asdis@mbl.is

Á hverjum degi streymir til landsins fólk frá hinu stríðshrjáða Sýrlandi, Balkanskaganum og öðrum löndum þar sem fátækt og eymd ríkir. Fólkið kemur hingað með flugi og sækir um hæli og þarf að vona það besta, en flestir sjá enga framtíð í heimalandinu. Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins er rætt við fjölskyldu frá Sýrlandi sem upplifði skelfingar stríðsins og lenti í ólýsanlegum raunum á flóttanum til Íslands. Einnig er rætt við fimm manna fjölskyldu frá Úsbekistan sem flúði vegna trúarofsókna. Faðirinn var tekinn höndum og barinn og sveltur í fangelsi en þau segja spillingu vera allsráðandi í landinu.

Útlendingastofnun leikur stórt hlutverk í móttöku hælisleitanda og rætt er við verkefnastjórana Björk Håkansson og Karen Theodórsdóttur til að fá innsýn í hvað gerist þegar hælisleitandi knýr dyra og biður um vernd.