Hannes Jón Jónsson
Hannes Jón Jónsson
Þegar austurríska handknattleiksfélagið West Wien réð Hannes Jón Jónsson sem þjálfara í stað Erlings Richardssonar, fékk félagið ekki aðeins nýjan þjálfara heldur einnig lykilleikmann.

Þegar austurríska handknattleiksfélagið West Wien réð Hannes Jón Jónsson sem þjálfara í stað Erlings Richardssonar, fékk félagið ekki aðeins nýjan þjálfara heldur einnig lykilleikmann. Hannes sýndi það og sannaði í gærkvöld þegar hann skoraði sjö mörk og varð markahæstur í mikilvægum sigri á Leoben, 29:28. Hannes skoraði sigurmark leiksins en West Wien var þremur mörkum undir, 26:23, skömmu fyrir leikslok.

Þetta var annar sigur West Wien á leiktíðinni en liðið hafði tapað þremur leikjum í röð eftir sigurleik í fyrstu umferðinni. Liðið er nú með 4 stig líkt og Leoben. sindris@mbl.is