J.K. Rowling
J.K. Rowling
Höfundur sagnabálksins um galdrastrákinn Harry Potter, J.K. Rowling, tilkynnti fyrir nokkru að til stæði að frumsýna næsta sumar á West End í London leikrit eftir óbirtri sögu hennar um sagnaheiminn, Harry Potter and the Cursed Child .
Höfundur sagnabálksins um galdrastrákinn Harry Potter, J.K. Rowling, tilkynnti fyrir nokkru að til stæði að frumsýna næsta sumar á West End í London leikrit eftir óbirtri sögu hennar um sagnaheiminn, Harry Potter and the Cursed Child . Rowling hefur nú tilkynnt að sögunni verði skipt upp í tvær sýningar, rétt eins og þegar tvær kvikmyndir voru gerðar eftir lokabók hennar um Potter, Harry Potter og Dauðadjásnin . Gestir munu samt geta séð báða hluta leikritsins sama daginn þar sem þeir verða frumsýndir samtímis; fyrri hlutann á eftirmiðdagssýningu og þann seinni um kvöldið. John Tiffany leikstýrir og Jack Thorne skrifar leikgerðina.