Carina Christensen
Carina Christensen
Eftir Carina Christensen: "Saman skorum við nú á norræna frumkvöðla að þróa lausnir á einni stærstu áskorun sem norrænu velferðarríkin hafa staðið frammi fyrir."

Norðurlöndin standa öll frammi fyrir breytingum á lýðfræðilegri samsetningu þjóðanna sem kalla á framsýna þróun í velferðarþjónustu. Höfuðborgir landanna fimm, frá Reykjavík í vestri til Helsinki í austri, hafa nú hafið samstarf við Nordic Innovation með það fyrir augum að þróa nýjar velferðarlausnir sem standast kröfur framtíðarinnar. Markmið borganna er að þróa nýja tækni og lausnir sem gera öldruðum og fötluðum kleift að lifa sjálfstæðu lífi á eigin heimili.

Þetta er mikil áskorun. Fyrst má nefna að mannfjöldaspár sýna að hlutfall aldraðra (65 ára og eldri) af heildarfjölda fullorðinna á Norðurlöndum muni vaxa úr 25% í dag í 40% árið 2040. Þessi þróun mun auka þörfina fyrir umönnun og heilbrigðisþjónustu meðal aldraða og fólks með skerta færni eða ólæknandi sjúkdóma. Aukningarinnar er þegar farið að gæta í höfuðborgunum fimm.

Þetta er ástæða þess að höfuðborgirnar hafa ákveðið að vinna náið saman að því að finna norrænar framtíðarlausnir. Þar sem velferðarkerfi landanna og þær áskoranir sem felast í velferðarþjónustu í þéttbýli eru um margt líkar gætu höfuðborgirnar, í stað þess að einblína á velferðarmálin á landvísu, átt samleið í að leita nýrra lausna.

Höfuðborgirnar leggja metnað sinn í að gera eins mörgum öldruðum og fötluðum og kostur er kleift að búa í eigin húsnæði og lifa sjálfstæðu lífi sem einkennist af virkri samfélagsþátttöku, félagslegum samskiptum, persónulegri reisn einstaklingsins og takmarkaðri þörf á hefðbundinni öldrunarþjónustu. Skilvirkari umönnunarþjónusta mun einnig gera sveitarfélögum kleift að halda útgjöldum vegna vaxandi fjölda aldraðra í skefjum.

Samstarf norrænu höfuðborganna við Nordic Innovation byggist á því að áskorunin er í eðli sínu norræn og þeirri staðreynd að meginhlutverk okkar er að stuðla að auknum milliríkjaviðskiptum og nýsköpun á Norðurlöndum.

Hugmyndin er að náin samvinna notenda, birgja og kaupenda að velferðartækni og þjónustu skili framsæknari nýsköpun. Verðlaunasamkeppnir eru einnig góður vettvangur til þess að auka tengslin milli framboðs- og eftirspurnarhliðar markaðarins á mismunandi stigum keppninnar.

Aðilarnir að baki Nordic Independent Living Challenge völdu að stofna til verðlaunasamkeppni til þess að hvetja til framfara og þróunar nýrra velferðarlausna. Þessi tegund samkeppni, sem byggð er á fyrirmynd Nesta, breskra samtaka sem vinna að nýsköpun, er nýmæli á Norðurlöndum.

Aðstandendur keppninnar völdu þarfamiðaða nálgun til þess að leggja áherslu á mikilvægi virkrar þátttöku notenda í þróunarferlinu.

Verðlaunasamkeppnin hófst í febrúar 2015 og var opin öllum þeim sem vinna að nýsköpun á Norðurlöndum – rótgrónum þjónustuaðilum í velferðarþjónustu, sprotafyrirtækjum, námsmönnum, öldruðum o.s.frv. Áhugasömum var boðið að senda inn hugmyndir og tillögur. Mikill fjöldi hugmynda barst og valdi dómnefnd 75 af 415 tillögum til áframhaldandi þátttöku. Í öðrum hluta keppninnar var m.a. haldinn tengslafundur þar sem þátttakendur höfðu tækifæri til þess að þróa lausnir sínar út frá þörfum notenda, hönnun og notagildi. Einnig gafst þeim kostur á að hitta aðra þátttakendur og finna áhugaverða samstarfsaðila.

Í næsta áfanga keppninnar þróuðu þátttakendur hugmyndir sínar enn frekar og gerðu drög að viðskiptaáætlunum. Að því loknu voru 25 af 75 umsækjendum valdir til áframhaldandi þátttöku. Þeir munu hittast um miðjan desember í Stokkhólmi og kynna hugmyndir sínar fyrir dómnefndinni. Fimm verkefni komast í úrslit og munu taka þátt í matsferli þar sem borgirnar meta gæði hugmyndanna út frá ávinningi notenda og hugsanlegum sparnaði fyrir borgirnar. Niðurstöðurnar verða hluti af endanlegu framlagi hvers verkefnisteymis í úrslitakeppninni. Sigurvegarinn verður valinn vorið 2016 og fær eina milljón norskra króna að launum. Einnig verða veitt nemendaverðlaun og verðlaun fyrir norræna samvinnu.

Samkeppnin Nordic Independent Living Challenge er mikilvægur hluti af nýsköpunarverkefninu Innovative Nordic Welfare Solutions sem er eitt af fimm svokölluðum vitaverkefnum sem Nordic Innovation hefur verið falið að hafa umsjón með. Verkefnin heyra undir norrænu samstarfsáætlunina um nýsköpun og viðskiptastefnu.

Verkefnið er krefjandi á marga vegu. Höfuðborgirnar og Norðurlöndin standa öll frammi fyrir miklum áskorunum í velferðarkerfinu vegna vaxandi fjölda aldraðra og aukinnar eftirspurnar eftir velferðarþjónustu. Saman skorum við nú á norræna frumkvöðla að þróa lausnir á einni stærstu áskorun sem norrænu velferðarríkin hafa staðið frammi fyrir.

Höfundur er framkvæmdastjóri Nordic Innovation (stofnun á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar) og fyrrverandi ráðherra í Danmörku.