Verðlag Olíuverð lækkar enn.
Verðlag Olíuverð lækkar enn.
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í gær og bættist lækkunin við verðlækkanir í síðustu viku. Verðið á Brent-hráolíu hefur lækkað um rúm 38% á einu ári.

Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði í gær og bættist lækkunin við verðlækkanir í síðustu viku. Verðið á Brent-hráolíu hefur lækkað um rúm 38% á einu ári. Hallsteinn Arnarson, sérfræðingur hjá IFS greiningu, segir mikla óvissu ríkja um framhaldið og hvenær olíuverðið nær viðspyrnu að nýju.

„Það er í raun og veru ómögulegt að segja til um hvar eða hvenær það nákvæmlega gerist. Fyrsta vísbending um mögulegan botn og umskipti í Brent-hráolíuverði væri sannfærandi hækkun upp fyrir 47 dollara á tunnuna,“ segir Hallsteinn. 20