Kvartett Kristjönu Stefánsdóttur flytur sinn árlega jóladjass í Tryggvaskála í kvöld kl. 21.
Kvartett Kristjönu Stefánsdóttur flytur sinn árlega jóladjass í Tryggvaskála í kvöld kl. 21. Á dagskránni verða þekkt jólalög í djössuðum útsetningum kvartettsins sem skipaður er Kristjönu Stefánsdóttur söngkonu, Vigni Þór Stefánssyni píanóleikara, Smára Kristjánssyni bassaleikara og Gunnari Jónssyni trommuleikara.