Útlendingastofnun hafa á þessu ári borist umsóknir fjögurra einstaklinga með ríkisfang í Bandaríkjunum og Kanada um hæli hér á landi.

Útlendingastofnun hafa á þessu ári borist umsóknir fjögurra einstaklinga með ríkisfang í Bandaríkjunum og Kanada um hæli hér á landi. Kristín María Gunnarsdóttir, staðgengill forstjóra Útlendingastofnunar, segir búið að afgreiða þrjár þessara umsókna, en til þessa hafa einstaklingar frá þessum ríkjum ekki fengið hæli á Íslandi.

Alls hafa einstaklingar með ríkisfang í fjórum ríkjum sem eru á lista stofnunarinnar yfir örugg ríki lagt inn umsókn á árinu eða eiga umsókn í vinnslu. 4