Breyting Borgarstjóri fær aðstoð við að setja upp skilti með heiti Svarthöfða.
Breyting Borgarstjóri fær aðstoð við að setja upp skilti með heiti Svarthöfða. — Morgunblaðið/Hallur Már
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur festu í gær upp skiltið Svarthöfða á gatnamótum þessarar nýju götu við Stórhöfða.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Óli Gneisti Sóleyjarson þjóðfræðingur festu í gær upp skiltið Svarthöfða á gatnamótum þessarar nýju götu við Stórhöfða.

Óli Gneisti setti hugmyndina, að kenna götu við persónu úr Star Wars, á vefinn Betri Reykjavík og hlaut hún þar mikið fylgi. Málinu var vísað til byggingarfulltrúans í Reykjavík sem hefur með nafngiftir gatna að gera og gerði hann að tillögu sinni að breyta heiti Bratthöfða, sem liggur milli Sævarhöfða og Stórhöfða, í Svarthöfða.

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík benti á í rökstuðningi með tillögunni að engin fasteign væri skráð við götuna og það myndi því ekki hafa áhrif á rekstur fyrirtækja. „Það getur verið við hæfi að nefna hluti í umhverfinu eftir nafntoguðum fyrirbærum hvers tímabils í sögu mannkyns, hvort sem er uppdiktuðum eða raunverulegum. Mörg dæmi eru um það í nafngiftum gatna í Reykjavík að þær séu nefndar eftir skáldsagnapersónum og er því ekki úr vegi að nefna götu í Höfðahverfinu Svarthöfða,“ sagði meðal annars í umsögn byggingarfulltrúans.