Síðustu aðventutónleikar Schola cantorum á Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju fara fram í dag kl. 12.
Síðustu aðventutónleikar Schola cantorum á Jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju fara fram í dag kl. 12. Einsöngvarar úr röðum kórsins verða Fjölnir Ólafsson bassi, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran og Ragnheiður Sara Grímsdóttir sópran og stjórnandi verður Hörður Áskelsson. Á efnisskrá má finna fjölbreytta aðventu- og jólatónlist, m.a. „Ó helga nótt“ og „Lux aurumque“.