Erlingur Bjartmar Ingvarsson fæddist á Blönduósi 13. apríl 1946. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Blönduósi, 3. desember 2015.

Foreldrar hans voru Ingvar Ágústsson, f. 12.1. 1906, d. 13.10. 1996, og Sigurlaug Jósefína Sigurvaldadóttir, f. 13.11. 1914, d. 21.1. 1986. Systkini Erlings eru Sigurvaldi Óli, f. 8.3. 1935, d. 15.10. 2012, Sigmar, f. 12.9. 1936, Guðlaug, f. 26.9. 1938, Erla, f. 26.9. 1938, Hreinn, f. 15.6. 1940, d. 15.8. 2014, Hannes, f. 16.1. 1945, Hörður Viðar, f. 28.4. 1949, Guðmundur, f. 24.2. 1951, Sigurlaug, f. 20.10. 1952, og Bára, f. 1.4. 1954.

Erlingur kvæntist Guðrúnu Atladóttur, f. 9.11. 1951, þau skildu. Saman áttu þau soninn Bjartmar Frey Erlingsson, f. 21.4. 1980, maki Nanna María Elfarsdótttir, f. 27.7. 1979, börn þeirra eru Sandra Björk, f. 20.7. 2008, og Tómas Pálmi, f. 1.7. 2010. Fyrir átti Guðrún þrjú börn: a) Rósu Vigfúsdóttur, f. 18.8. 1972, maki hennar er Sigursveinn Óskar Grétarsson, f. 14.4. 1975. Börn þeirra eru Vigfús Grétar, f. 8.2. 2014, og Sigurður Grétar, f. 2.3. 2015. Fyrir átti Rósa tvær dætur, Bergþóru Kjartansdóttur Long, f. 11.6. 1995, og Bjargeyju Kjartansdóttur Long, f. 18.1. 1998. b) Atla Örlygsson, f. 12.12. 1970, maki hans er María Ingibjörg Kristinsdóttir, f. 10.4. 1973, saman eiga þau Guðrúnu Ölmu, f. 30.5. 2001. Fyrir átti María tvo syni, Kristin Hrannar Hjaltason, f. 23.6. 1991, og Bjartmar Frey Hjaltason, f. 23.10. 1994. c) Írisi Kristinsdóttur, f. 21.5. 1975, maki hennar er Grettir Adolf Haraldsson, f. 29.10. 1975. Saman eiga þau tvo syni, þá Hrafn Unnar, f. 12.4. 2012, og Rökkva Örn, f. 12.4. 2012. Fyrir átti Íris þau Kristin Frey Óskarsson, f. 15.7. 1993, Emilíu Þóru Ólafsdóttur, f. 24.2. 2006, og Ólaf Styrmi Ólafsson, f. 15.4. 2008. Grettir átti áður Arnar Breka, f. 13.1. 2004.

Erlingur ólst upp á Ásum í Langadal. Hann var með fjárbúskap á Hamri frá árinu 1965. Hann keypti Hamar árið 1970, 1976 byggði hann þar íbúðarhús og bjó þar alla sína ævi fyrir utan tvo vetur sem hann varði á höfuðborgarsvæðinu. Erlingur var með fé í 24 ár en sneri sér að skógrækt þegar þeim búskap lauk. Erlingur vann ötullega að skógrækt á Hamri og hlaut viðurkenningu frá Landssamtökum skógareigenda fyrir ötult skógræktarstarf. Erlingur hefur unnið ýmis tilfallandi störf, svo sem vinnu við sláturhús, girðingarvinnu, timburvinnslu, leikskóla og fiskvinnslu svo eitthvað sé upptalið. Erlingur vann í 16 ár á sambýli fyrir fatlaða á Blönduósi. Hann var fyrst og fremst náttúruunnandi og hafði unun af því að umgangast dýr og vera úti í náttúrunni við störf sín.

Útför Erlings fór fram í kyrrþey í Svínavatnskirkju að ósk hans 12. desember 2015.

Jæja pabbi minn, þá ertu farinn. Vissi ekki að það yrði svona mikið tóm við að missa þig. Betri föður er erfitt að ímynda sér, þú kenndir mér svo margt og þó að ég færi ekki alltaf eftir því þá voru þau gildi sem þú kenndir mér alltaf bak við eyrað.

Síðan ég man eftir mér finnst mér þú hafa komið fram við mig sem jafningja, þó að maður væri bara barn eða unglingur sem hélt að maður vissi allt.

Ein sterk minning er þegar þú leiddir mig upp á hálsinn og varst að spyrja mig hvað mér fyndist um að hætta að vera með kindur, og það sem mér finnst svo merkilegt er að þú hlustaðir á hvað mér fannst þó að ég væri ekki orðinn tíu ára.

Þú hafðir alltaf eitthvert lag á að heyra í þeim sem aðrir hlustuðu lítið á og sást oft meira í fólki en það sem blasti við öðrum. Þú vissir að þó að fólk passaði ekki í normið hafði það oft merkilega sögu að segja.

Ég veit ekki hversu margar vísur þú þuldir upp fyrir mig í veikri von um að eitthvað myndi síast inn af innihaldi þeirra. Ég lærði að meta þær en það er langt frá því að ég geti þulið þær upp fyrir aðra. Ein af vísunum náði þó að skjóta rótum eftir að hafa heyrt hana líklega oftar en góðu hófi gegnir, það er Ekkjan við ána eftir Guðmund Friðjónsson:

Hví skyldi ég ekki reyna að byrla Braga full

og bræða, steypa og móta hið dýra feðra gull

ef heimasætan kynni að horfa á aðferð mína

og hlusta á stutta sögu um mömmu og ömmu sína.

Sandra og Tómas eiga eftir að sakna þín. Þú hafðir eitthvert lag á að vera dálítið dularfullur og spennandi þar sem þau vissu ekki alveg hvar þau höfðu þig en fundu samt öryggið sem fylgdi þér. Þau náðu að vera með þér í veikindunum þínum og tengjast þér enn betur í gegnum þann tíma. Það var eitthvað svo fallegt við að þú skyldir reyna að faðma börnin þó að þú næðir því ekki alveg, það var síðasta hreyfingin sem ég sá hjá þér.

Það er ekki lítið ævistarf sem þú skilur eftir þig, þú náðir að gera þig skuldlausan, að vera engum háður og að fylla jörðina af skógi sem mun vaxa og dafna um ókomin ár.

Takk, pabbi, fyrir að gera mig að þeim manni sem ég er í dag og fyrir að sýna mér hvernig ég á að vera góður faðir fyrir mín börn.

Hvíl í friði.

Þinn sonur,

Freyr.

Erlingur var alveg einstakur maður, á svo margan hátt. Að fylgjast með því baráttuþreki sem hann bjó yfir allt til síðasta dags var aðdáunarvert. Hann háði erfiða baráttu en hann barðist hatrammlega, þótt baráttan hafi oft reynst honum erfið bæði líkamlega og andlega.

Þetta baráttuþrek einkenndi hann allan þann tíma sem ég þekkti hann.

Aldrei féll honum verk úr hendi og það eru fáir sem myndu leika eftir þá miklu vinnu sem hann vann á Hamri við uppbyggingu jarðarinnar. Enda var jörðin hans honum allt, hjarta hans og sál. Þau voru eitt og þar leið honum alltaf best.

Samband okkar tveggja var mjög skemmtilegt, við gátum verið ósammála og rökrætt ýmis mál en oftar en ekki vorum við sammála og gátum rætt allt milli himins og jarðar, helst töluðum við um uppeldismál, umhverfismál og samfélagsvandamál. Hann var svo nægjusamur og nýtinn og blöskraði iðulega asinn og bruðlið í þjóðfélaginu. Af honum lærði ég margt og hefur hann haft meiri áhrif á mig en ég heft gert mér grein fyrir.

Við ræddum Frey og börnin okkar mikið og alltaf kom sama blikið í augu hans er við ræddum hann.

Stoltið af drengnum sínum og öllum hans gjörðum var ótvírætt. Hann var svo stoltur af þeim manni sem hann er orðinn og á Erlingur þar mikinn heiður skilinn.

Hann elskaði börnin mín, barnabörnin sín, afar heitt og fannst þau alltaf einstaklega vel gerð börn, hann söng fyrir þau og sagði þeim sögur. Hann var að semja bók handa þeim sem hann náði því miður ekki að klára. Hans síðasta hreyfing í lífinu var að rétta upp hönd sína til að reyna að taka utan um þau er þau kvöddu hann í síðasta sinn. Þar skein baráttuþrekið og umhyggjan í gegn þótt hann ætti ekkert eftir.

Erlingur, ég þakka fyrir allar okkar stundir og allt sem þú hefur kennt mér.

Blessuð sé minning þín.

Þín tengdadóttir,

Nanna María.

Það hverfa til moldar menn og verk

og manni finnst þynnast um bekki.

En heimdragans taug er töluvert sterk

hún tognar – en slitnar ekki.

Og þegar í langferð þú leggur úr vör

er litla kotið þitt með í för.

(Höf.: Hannes Ágústsson. )

Landseti Krists, vinur minn og fermingarbróðir á Hamri í Svínavatnshreppi, Erlingur B. Ingvarsson er látinn. Banamein hans var krabbamein, sá slóttugi sjúkdómur.

Við Erlingur vorum saman í farskóla í Svínavatnsskólahverfi og fermdumst tveir saman í samnefndri kirkju hinn 6. júní 1959. Þegar Erlingur tók Hamar á leigu, var jörðin Kristfjárjörð gefin til handa fátækum. Sagði hann að sér yrði fyrirgefið allt og yrði alltaf fátækur, því hann væri landseti Krists.

Jörðin Hamar er meðalstór og nýtur umhverfisins þar sem Gunnfríðarskógur er fyrir norðan hana. Mestan part er gróið land með frjósömum moldarjarðvegi, gott land niðri við Blöndu til kornræktar.

En það háði framgangi á Bakásajörðunum, sem svo eru kallaðar, að vegasamband komst ekki almennilega á og því varð öll uppbygging erfið og háði það framþróun byggðarinnar

Erlingur hóf að byggja íbúðarhús árið 1976. Þegar ég hafði áhyggjur af því að hann væri að reisa sér hurðarás um öxl sagði hann við mig: „Þú skalt nú sjá að þetta tekst allt saman, lagsmaður.“

Og það gekk eftir. Erlingur var harðduglegur og ósérhlífinn maður, vel gefinn og skákmaður góður.

Erlingur var í sambúð með Guðrúnu Atladóttur og eignuðust þau einn son, Bjartmar Frey. Guðrún og Erlingur slitu samvistum. Guðrún kom með tvö börn í bú þeirra og hafa börnin alltaf haldið mikilli tryggð við hann.

Hann sagði mér eitt sinn að hann væri hamingjusamur maður með son sinn og fósturbörn.

Erlingur gerðist skógarbóndi þegar fjárstofn hans var felldur vegna riðuveiki og hóf skógrækt á jörðinni

Hann fór þá að vinna á sambýli á Blönduósi sem hann var ánægður með. Hamar er vel til skógræktar fallin og er þar núna kominn álitlegur skógur. Erlingur hafði sterkar taugar til jarðarinnar og sagði oft að ekki færi hann frá Hamri nema láréttur.

Erlingur var skemmtilegur, ágætur sögumaður og minnugur. Ein minnisstæð saga var þegar við vorum í landafræðitíma á Höllustöðum og Stefán kennari á Kagaðarhóli renndi niður landakortinu sem var að ég held eini hluturinn sem fylgdi farskólanum milli bæja. Stefán benti strangur á sundið milli Frakklands og Englands og spurði hvað það héti.

Allir götuðu. Þá fór Stefán að toga skyrtuna fram úr erminni. Þá urðu nú allir mjög vitrir og sögðu Ermarsund einum rómi.

Við Erlingur fórum lengst af saman í seinni göngur á Auðkúluheiði. Hann var jafnan vel búinn gangnamaður með trausta hesta og ratvís.

Ég kveð nú þennan góða æskuvin minn með söknuði. Ég veit að áfram verður haldið því góða starfi á Hamri, sem Erlingur hóf og jörðin er í góðum höndum. Við, Inga Þórunn, biðjum fólki hans blessunar og sendum því samúðarkveðjur.

Þorsteinn H. Gunnarsson.

HINSTA KVEÐJA
Hæ afi.
Ég sakna þín mjög mikið og ég man þegar við vorum í blómagarði á Akureyri og það var mjög gaman. Gangi þér vel uppi í himninum. Vonandi mun Jesús passa upp á þig.
Ég sakna þín. Vonandi mun þér líða vel uppi á himninum. Bæ afi, ég elska þig.
Sandra Björk.
Bæ afi. Gangi þér vel uppi á himninum. Takk fyrir nammið. Ég elska þig.
Tómas Pálmi.