Annað tækifæri.
Annað tækifæri. S-Allir
Norður | |
♠G73 | |
♥G109 | |
♦ÁD103 | |
♣Á84 |
Vestur | Austur |
♠Á1086 | ♠D52 |
♥Á2 | ♥K763 |
♦2 | ♦87654 |
♣DG7632 | ♣5 |
Suður | |
♠K94 | |
♥D854 | |
♦KG9 | |
♣K109 |
Vestur | Norður | Austur | Suður |
-- | -- | -- | 1 ♣ |
pass | 1 ♦ | pass | 1 G |
pass | 3 G | allir pass | |
Body | |||
Sjáum vestur. Hann spilar út litlu laufi upp í opnunarlit suðurs og hefur ekki beinlínis heppnina með sér. Sagnhafi fær fyrsta slaginn ódýrt á laufníu og spilar hjarta. Sár og svekktur fylgir vestur hugsunarlaust lit með tvistinum og hefur þar með glatað upplögðu tækifæri. Hvað átti hann að gera?
Jú, auðvitað. Fara upp með hjartaásinn og þruma út spaðatíu! Það er eina leiðin til að sækja þrjá slagi á spaða í þessari legu.
>