Sigmundur Helgi Hinriksson Hansen fæddist í Hafnarfirði 26. október 1928. Hann lést á Dvalarheimilinu Höfða Akranesi 28. desember 2015.

Foreldrar Sigmundar voru Hinrik A. Hansen, f. 1859 á Brunnastöðum á Vatnsleysuströnd, d. 1940, og Gíslína G. Egilsdóttir, f. 1892 á Saurbæ á Rauðasandi, d. 1953. Systkini Sigmundar voru: 1) Hinrik, f. 1926, d. 1992. 2) Jónína, f. 1927, d. 2015. 3) Egill, f. 1929, d. 2011. 4) María, f. 1932, d. 2013. 5) Kristín, f. 1936. Hálfsystur Sigmundar frá fyrra hjónabandi Hinriks voru Helga, f. 1889, d. 1916, og Guðlaug, f. 1893, d. 1953.

Sigmundur eignaðist eina dóttur með Engilráði Guðmundsdóttur, f. 1929, d. 2013; Finnborgu Guðmundu, f. 15. nóvember 1947, d. 5. nóvember 2005. Hún bjó í Bandaríkjunum og átti fimm börn sem öll eru búsett í þar.

Sigmundur giftist 26. október 1954 Dagbjörtu Jóns Sigurðardóttur, f. 26. október 1932. Foreldrar hennar voru Sigurður Eyþórsson og Guðrún Jónsdóttir, þau skildu. Börn Sigmundar og Dagbjartar eru: .1) Gísli, kvæntist Sigríði Árnadóttur og átti með henni tvær dætur, Önnu Maríu og Ragnhildi. Þau skildu en hann býr í dag með Hildi Einarsdóttur.

2) Guðjón, kvæntist Magneu Sigríði Guttormsdóttur og á með henni tvær dætur, Tinnu Björt og Áslaugu Sif. 3) Gunnar. Hann á soninn Þórarin Bjart með Stefaníu Þórarinsdóttur. Síðar kvæntist hann Sólrúnu Ólafsdóttur, átti hún fyrir tvo syni, Jakob Þór og Esra Þór sem Gunnar gekk í föðurstað. 4) Sigrún, gift Grétari Kristinssyni og á með honum tvö börn, Kristin Hlíðar og Dagbjörtu Ingu.

Útför Sigmundar fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 7. janúar 2016, klukkan 13.

Elsku besti afi.

Þetta er lítið, skrítið líf eins og þú sagðir svo oft. Það er margt sem flýgur í gegnum hugann á tímamótum sem þessum og ég fyllist söknuði við tilhugsunina að geta ekki lengur skroppið í afaspjall upp á Höfða. Ég man þegar við sátum saman fyrir utan Höfða og horfðum út á sjó. Þú lagðir höfuðið þitt að mínu og sagðir: „Heyrirðu, heyrirðu hvernig vatnið leikur um bátinn?“ „Hvort okkar var aftur komið með fleiri fiska?“ „Var ég ekki kominn með fimm fiska en þú aðeins þrjá... eða var það öfugt?“ Svona gátum við gleymt okkur í langa stund, bæði með lokuð augun að rifja upp gamlar og góðar minningar. Núna sit ég ein, afi, og rifja upp allar okkar stundir saman, fyrir þær verð ég ævinlega þakklát.

Mamma segir að um leið og við sáum hvort annað, ég nokkurra daga gömul, þá náðum við saman. Það er gaman að skoða gamlar myndir, alltaf er ég við hliðin á þér, að halda í höndina þína eða kúra í hálsakoti. Ég man svo sterkt eftir því að hafa legið hjá þér á Ásvallagötunni að hlusta á afasögu. Eins að horfa á þig spila á munnhörpu. Ég man hvað mér fannst það merkilegt og í mínum augum varstu flottasti afinn í bænum. Með árunum urðu bönd okkar sterkari og eftir að þú fluttir upp á Akranes hafði ég mun fleiri tækifæri til að heimsækja þig sem ég nýtti mér heldur betur, enda leið mér svo vel hjá þér, afi.

Manstu þegar þú sagðir mér að þér hefði gengið svo illa að sofna tvö kvöld í röð. Ég sagði þér að þegar hugurinn minn færi á fullt uppi í rúmi og ég gæti ekki sofnað þá hugsaði ég alltaf um eitthvað fallegt til að dreifa huganum og til ná að sofna. Þú spurðir hvað ég hugsaði þá um og ég svaraði: „Til dæmis um þig, þig og mig að bralla eitthvað saman.“ Þetta svar gladdi þig óendanlega mikið.

Við eigum ófáar minningar saman bæði niðri í kompu og seinna meir úti í bílskúr. Þegar við fórum út í búð saman sagðirðu hverjum þeim sem heyra vildi að ég væri litla afastelpan þín sem tæki svo við heimasmíðinni þinni. Það var svo gaman að læra af þér, afi. Labba beint úr skólanum yfir til þín og fara út í skúr með þér. Svo varstu alltaf jafn hissa að ég þyrfti að fara heim: „Ha strax, kemurðu ekki aftur á morgun?“

Þó að þetta sé eitt það erfiðasta sem ég hef upplifað, afi, er ég samt svo þakklát fyrir að hafa náð að kveðja þig. Sitja við hliðina á þér og spjalla við þig. Þó þú gætir ekki svarað mér með orðum þá gastu svarað mér með augunum. Við táruðumst saman en svo brostirðu líka með augunum til mín, afi. Ég veit að þú fannst fyrir mér, ég veit að þú heyrðir í mér og ég veit að þú varst þakklátur fyrir að hafa mig þér við hlið.

Ég gæti endalaust rifjað upp, afi, og ég mun halda áfram að gera það alla mína ævi. Þú varst einn af mínum bestu vinum og einn helsti stuðningsmaður minn í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Ég elska þig, afi, og er svo þakklát fyrir að hafa átt svona einstakt samband með þér.

Sjáumst í draumum okkar.

Þín afastelpa,

Dagbjört Inga.

Ég var ekki há í loftinu þegar ég kynntist fyrst vináttu Simba og konu hans, Birtu frænku. Þau hafa verið mér og foreldrum mínum nánir og tryggir vinir alla tíð. Mikill samgangur var þeirra á milli og margt hefur verið brallað saman í gegnum tíðina.

Simbi og Birta byggðu sér sumarbústaðinn Hala í landi Stóra-Búrfells í Svínavatnshreppi. Dvöldu þau þar ávallt sumarlangt. Foreldrar mínir byggðu sér sumarbústað rétt hjá á Dunhóli.

Minningarnar tengdar þessum stöðum eru nær óteljandi, allar mjög góðar, sem ylja manni á stundum sem þessum. Er ég sit hér og rifja nokkrar þeirra upp, heyri ég bókstaflega hlátrasköllin og finn fyrir þeirri einstöku hlýju sem ríkti milli foreldra minna, Simba og Birtu.

Simbi var mikið náttúrubarn og naut sín í sveitinni sem hann unni svo mjög. Hann hafði einstakt lag á að fá mann í lið með sér og baðaði náttúruna, fuglasönginn og veiðina í vatninu þvílíkum ævintýraljóma að maður gat ekki annað en hrifist með.

Það var ávallt pláss í fangi og hjarta Simba fyrir litlu stelpuna frá Dunhóli og mun ég ávallt búa að því að hafa fengið að vera samferða Simba um stund á lífsins vegi.

Kallið er komið,

komin er nú stundin,

vinaskilnaðar viðkvæm stund.

Vinirnir kveðja

vininn sinn látna,

er sefur hér hinn síðsta blund.

Margs er að minnast,

margt er hér að þakka.

Guði sé lof fyrir liðna tíð.

Margs er að minnast,

margs er að sakna.

Guð þerri tregatárin stríð.

Héðan skal halda

heimili sitt kveður

heimilisprýðin í hinsta sinn.

Síðasta sinni

sárt er að skilja,

en heimvon góð í himininn.

Far þú í friði,

friður Guðs þig blessi,

hafðu þökk fyrir allt og allt.

Gekkst þú með Guði,

Guð þér nú fylgi,

hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.

Grátnir til grafar

göngum vér nú héðan,

fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.

Guð oss það gefi,

glaðir vér megum

þér síðar fylgja' í friðarskaut.

(Vald. Briem)

Farvel, minn kæri vinur, þar til næst, farvel.

Ingibjörg S. Gunnarsdóttir.

Sigmundur var starfsmaður Prentsmiðjunnar Odda um árabil. Hann var pappírsmaður en kallaði sig pappírsmálaráðherra. Það átti vel við. Vinsæll og útsjónarsamur starfsmaður við aðstæður sem oft voru erfiðar, en starfsemin var þá við Grettisgötu í Reykjavík.

Eftir að Simbi lauk störfum hjá Odda fyrir allmörgum árum héldum við tengslum og kunningsskap áfram, sem hann átti sannarlega heiðurinn af. Hann átti frumkvæðið og sá um að kalla okkur saman til hádegisverðar tvisvar á ári, mig og fyrrverandi samstarfsmann sinn á pappírslagernum, Pálma V. Jónsson lækni, en hann hafði verið aðstoðarmaður Simba á lagernum í sumarvinnu um nokkurt skeið á námsárum sínum. Gjarnan var farið á veitingastaðinn Laugaás en þar má sjá klukku með merki staðarins, sem Simbi skar út og færði gestgjafanum. Sem dæmi um hirðusemi Simba færði hann okkur nýverið kvittunina fyrir fyrsta hádegisverðinum árið 1983. Eftir að hann átti erfiðara með að keyra í höfuðstaðinn frá Akranesi heimsóttum við hann þangað þegar hann kallaði. Síðasta ferðin var honum erfiðari en áður en alúðlegar og hjálplegar hjúkrunarkonur á Höfða aðstoðuðu okkur við að koma Simba upp í bílinn og við ókum um bæinn undir hans leiðsögn, létum nægja að bjóða upp á pylsur og tilheyrandi í stað þess að setjast inn á veitingastað og áttum ánægjulega stund með honum.

Það var ævintýri að koma í kjallarann á Ásvallagötunni hjá Simba á meðan hann bjó í höfuðstaðnum og sjá aðstöðuna þar sem hann sat við í frístundum og skar út klukkur með ýmsu formi af miklu listfengi, útlínur Íslands, eyjarnar í kringum landið eða hvaðeina sem honum hugkvæmdist. Ég varð hugfanginn þegar hann bauð mér að líta í kjallaraherbergið þar sem hann hafði breytt saumavél í vél til útsögunar, setti útsagarblað í stað saumnálar og festi reiðhjólapumpu við vélina til að blása burtu saginu. Síðar kom hann sér upp betri búnaði á Akranesi og varð vinsæll framleiðandi ýmiss konar gripa fyrir gesti, gangandi og ferðamenn. Eftir að hann flutti á Akranes fékk hann mun betri aðstöðu og naut sín betur við útskurðinn. Hugmyndaauðgi og handlagni voru honum í blóð borin.

Sigmundur var mikill Oddamaður alla tíð og fylgdist vel með þótt hann hyrfi til annarra starfa. Honum var alltaf hlýtt til mín og fjölskyldu minnar, sem var okkur mikils virði og við kunnum að meta. Við kveðjum góðan dreng og biðjum honum Guðs blessunar. Aðstandendum vottum við okkar dýpstu samúð og þökkum samstarf og ljúfar samverustundir í gegnum mörg ár.

Þorgeir Baldursson.

Sigmundi Hansen kynntist ég fyrir 20 árum þegar hann heimsótti mig á Landmælingar Íslands og óskaði eftir leyfi til að saga út forláta klukkur með útlínum landsins. Það sópaði af Sigmundi og við áttum langt og gott spjall sem varð upphaf að góðri vináttu. Þarna fundum við nefnilega út sameiginlega frændsemi með Agli safnverði á Hnjóti, sem leiddi m.a. til eftirminnilegrar reisu okkar tveggja vestur í Örlygshöfn þar sem við nutum góðrar gestrisni og frábærrar leiðsagnar Egils. Það var gaman að fylgjast með þeim frændum leika sér í fjörunni á Rauðasandi og rifja upp gamla takta frá ungdómsárum. Ekki var síður gaman að heimsækja Sigmund á Ásvallagötuna þar sem hann dundaði sér daglangt á sínu vel skipulagða verkstæði í kjallaranum. Unun var að sjá hvað handlaginn gat framleitt marga fagra gripi með fábrotnum tækjum. Fyrir utan verkstæðið stóðu ávallt myndarlegir krossar, en aðspurður sagðist Sigmundur smíða þá yfir leiði fátækra og tæki aldrei krónu fyrir. Hann sagðist reyndar alltaf fá greitt fyrir þá í gegnum huliðsheima, því nær undantekningarlaust ynni hann í happdrættinu eftir slíkar velgjörðir. Gaman var í kjallaranum en enn skemmtilegra í eldhúsinu með Sigmundi og Birtu þar sem margar sögur voru sagðar. Það var virkilega mannbætandi að fá að kynnast manni eins og Sigmundi Hansen. Með þessum fátæklegu orðum sendi ég samúðarkveðju til Birtu og fjölskyldunnar.

Örn Sigurðsson.