Lionel Messi
Lionel Messi
Barcelona er svo gott sem komið áfram í átta liða úrslitin í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu eftir öruggan 4:1-sigur í borgarslagnum gegn Espanyol á Nou Camp í gær en þetta var fyrri viðureign liðanna.

Barcelona er svo gott sem komið áfram í átta liða úrslitin í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu eftir öruggan 4:1-sigur í borgarslagnum gegn Espanyol á Nou Camp í gær en þetta var fyrri viðureign liðanna. Lionel Messi skoraði tvö fyrstu mörk Börsunga og þeir Gerard Pique og Neymar skoruðu sitt markið hvor. Gestirnir luku leiknum með níu menn inni á vellinum en Hernan Perez fékk reisupassann á 72. mínútu og fjórum mínum síðar fór Pape Kouli Diop sömu leið.

Arda Turan og Aleix Vidal léku sína fyrstu leiki með Barcelona en þeir urðu löglegir með Katalóníuliðinu um áramótin.

gummih@mbl.is