Eftir fimmtung einn úr öld ýmsum finnst að lítið skaði er við sjáum aldinn höld yfirgefa Bessastaði. Nú er jólabókaflóðið að baki en forsetaframbjóðendaflóðið tekur við.
Eftir fimmtung einn úr öld
ýmsum finnst að lítið skaði
er við sjáum aldinn höld
yfirgefa Bessastaði.
Nú er jólabókaflóðið að baki en forsetaframbjóðendaflóðið tekur við.
Íslendinga eflist heiður
enginn verður sár né leiður
ef við kjósum öll með hraði
Ástþór minn á Bessastaði.
Indriði á Skjaldfönn.