Landsbankinn Rún Ingvarsdóttir hefur hafið störf í markaðs- og samskiptadeild Landsbankans. Hún mun sinna upplýsingamálum og samskiptum við fjölmiðla við hlið upplýsingafulltrúa bankans.
Landsbankinn Rún Ingvarsdóttir hefur hafið störf í markaðs- og samskiptadeild Landsbankans. Hún mun sinna upplýsingamálum og samskiptum við fjölmiðla við hlið upplýsingafulltrúa bankans.

Rún hefur starfað á fréttastofu RÚV frá árinu 2007 og sinnti þar einkum fréttum af erlendum vettvangi. Hún er með MA-gráðu í alþjóðafræðum frá Berkeley-háskóla í Kaliforníu í Bandaríkjunum og BA-gráðu í mannfræði og bókmenntafræði frá Háskóla Íslands.

Í tilkynningu frá Landsbankanum í tengslum við ráðningu Rúnar segir að stækkun samskiptateymis bankans sé liður í því að bæta og efla upplýsingamiðlun innan sem utan bankans.