Austurríkismenn, undir stjórn Patreks Jóhannessonar, héldu sigurgöngu sinni í undankeppni HM í handknattleik áfram í gær. Austurríki burstaði Ítalíu, 40:27, eftir að hafa verið 16:12 yfir í hálfleik en þjóðirnar áttust við í Trieste á Ítalíu.
Austurríkismenn, undir stjórn Patreks Jóhannessonar, héldu sigurgöngu sinni í undankeppni HM í handknattleik áfram í gær.
Austurríki burstaði Ítalíu, 40:27, eftir að hafa verið 16:12 yfir í hálfleik en þjóðirnar áttust við í Trieste á Ítalíu. Þar með hafa lærisveinar Patreks unnið þrjá leiki sína í riðlinum.
Nikola Bilyk var markahæstur Austurríkismanna með níu mörk og Sebastian Frimmel kom þar næstur með fimm en þjóðirnar eigast við í Austurríki á laugardaginn.
gummih@mbl.is