Fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi í desember jókst um 31,9% prósent milli ára, samkvæmt talningum Ferðamálastofu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Alls fóru um 70.900 erlendir ferðamenn frá landinu í desember eða um 17.100 fleiri en í desember árið 2014.

Alls ferðuðust um 1.262.000 erlendir ferðamenn um Keflavíkurflugvöll árið 2015, en gert er ráð fyrir að sú tala nái til um 97% þeirra ferðamanna sem hingað komu.

Utanlandsferðum Íslendinga fjölgaði einnig á árinu, en um 450.300 Íslendingar fóru utan á árinu, eða um 50.300 fleiri en árið 2014.