Hljómsveitin The Joshua Tree frá Dublin á Írlandi heldur tónleika á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi 15. janúar nk.
Hljómsveitin The Joshua Tree frá Dublin á Írlandi heldur tónleika á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi 15. janúar nk. Hljómsveitin flytur lög U2 og reynir í öllu að líkja eftir henni á tónleikum, bæði hvað varðar söng, hljóðfæraleik, sviðsframkomu og klæðaburð og er nefnd eftir einni þekktustu breiðskífu U2. The Joshua Tree fer á tónleikum sínum yfir tónlistarsögu U2, allt frá fyrstu plötum til þeirra nýjustu.