7. janúar 1906 Ungmennafélag Akureyrar var stofnað. Það hefur verið talið fyrsta ungmennafélagið hér á landi og beitti sér fyrir stofnun UMFÍ. 7.
7. janúar 1906
Ungmennafélag Akureyrar var stofnað. Það hefur verið talið fyrsta ungmennafélagið hér á landi og beitti sér fyrir stofnun UMFÍ.
7. janúar 1942
María Markan söng hlutverk greifafrúarinnar í sýningu á Brúðkaupi Fígarós í Metropolitan-óperunni í New York. Hún var þar með fyrsti Íslendingurinn sem kom fram í aðalhlutverki í þessu fræga óperuhúsi.
7. janúar 1944
Helgi Hjörvar hóf lestur útvarpssögunnar Bör Börsson eftir Johan Falkberget. Sagan segir frá nýríkum sveitastrák og gerist í Noregi eftir heimsstyrjöldina fyrri. Lesturinn stóð fram í maí og vakti mikla athygli. „Götur tæmdust og ekki þýddi að auglýsa kvikmyndasýningar,“ sagði í bókinni Útvarp Reykjavík.Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson