Engin loðna sást út af austurhluta Norðurlands og fyrir Norðausturlandi í loðnumælingarleiðangri skipa Hafrannsóknastofnunar og þriggja veiðiskipa. Ber þessum upplýsingum saman við fréttir frá togaraskipstjórum sem telja að lítið líf sé á þessum slóðum.

Engin loðna sást út af austurhluta Norðurlands og fyrir Norðausturlandi í loðnumælingarleiðangri skipa Hafrannsóknastofnunar og þriggja veiðiskipa. Ber þessum upplýsingum saman við fréttir frá togaraskipstjórum sem telja að lítið líf sé á þessum slóðum. Allavega sáust engar vísbendingar um kröftuga hrygningargöngu þar eins og oft hefur verið á þessum tíma.

Sú loðna sem sást við vestanvert Norðurland og Vestfirði var ekki í neinum stórum þéttingum. Þegar veður lægir fer Árni Friðriksson RE ásamt einu veiðiskipi til að mæla þá loðnu sem skipstjórarnir sáu í leiðangrinum. Eftir það verður loðnuráðgjöfin endurmetin. 2