Áhugamálið Núna er gaman að vera tölvuleikjanörd. Sýndarveruleikagleraugu hafa tekið miklum framförum og hægt að sjá nýtt blómaskeið í tölvuleikjum handan við hornið. Með Tesla-suit samfestinginum má vonandi fara enn dýpra inn í leikinn.

Þessi flík inniheldur alls kyns rafbúnað sem gefur snerti-svörun í samræmi við það sem gerist í sýndarheiminum. Í búningnum eru líka hita- og kælielement sem leyfa spilaranum að finna það á eigin skinni þegar hann er að skjóta geimverur á ísköldu tungli eða vonda karla í brennandi heitri eyðimörk.

Safnað er fyrir framleiðslunni á Kickstarter og á að vera hægt að tryggja sér eintak fyrir jafnvirði ríflega 200.000 kr. ai@mbl.is