Vefsíðan Metnaðarfulla fagfólkinu hættir stundum til að sökkva sér um of ofan í vinnuna. Reksturinn á hug þess allan; nánast frá því að augun eru opnuð á morgnana þar til höfuðið snertir koddann á kvöldin.

Getur það þá gerst, jafnvel þótt það hafi ekki verið ætlunin, að makinn fær að sitja á hakanum. Allt í einu eru margar vikur og mánuðir liðnir án þess að sambandinu hafi verið sinnt svo nokkru nemi og stór gjá kann að hafa myndast í sambandinu.

Date Box (www.getdatebox.com) er ný þjónusta fyrir Bandaríkjamarkað sem á að hjálpa fólki að rækta sambandið við makann. Felst þjónustan í því að einu sinni í mánuði berst lítil sending í pósti með öllu sem þarf til að eiga ánægjulegt „stefnumót“.

Í pakkanum gætu t.d. verið léttur danstími, matreiðslunámskeið eða vín- og ostasmökkun. Kemur eitthvað nýtt í hverjum mánuði svo að upplifunin á alltaf að vera fersk og spennandi, og vitaskuld rómantísk og sambandsstyrkjandi.

ai@mbl.is