Ingibjörg hefur verið ráðin lögmaður á vinnumarkaðssviði samtakanna. Ingibjörg er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Auk þess er hún viðurkenndur bókari frá Háskólanum í Reykjavík.
Ingibjörg hefur áður starfað sem löglærður fulltrúi hjá Lögmönnum í Skipholti og LOGOS lögmannsþjónustu ásamt því að hafa starfað sem lögmaður hjá EMBLU lögmönnum og ACTIO ráðgjöf.
Hrafnhildur hefur verið ráðin skjalastjóri samtakanna. Hrafnhildur er bókasafns- og upplýsingafræðingur frá Háskóla Íslands. Auk þess að vinna fyrir SA mun hún veita félögum í Húsi atvinnulífsins ráðgjöf við upplýsingastjórnun.