Icelandair Alls flutti Icelandair um 3,1 milljón farþega á síðasta ári.
Icelandair Alls flutti Icelandair um 3,1 milljón farþega á síðasta ári. — Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Farþegum Icelandair í millilandaflugi fjölgaði um 16% í desember frá desember á síðasta ári, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Alls flutti félagið 185 þúsund farþega í mánuðinum.

Farþegum Icelandair í millilandaflugi fjölgaði um 16% í desember frá desember á síðasta ári, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Alls flutti félagið 185 þúsund farþega í mánuðinum. Framboð jókst einnig milli ára og nam 15%, sætanýting í desember var 79,2%, en í fyrra nam hún 78,7%.

Alls flutti félagið 3,1 milljón farþega á árinu, en þeir hafa aldrei verið fleiri. Fjölgaði þeim um 18% frá árinu 2014.

Fraktflutningar Icelandair jukust um 7% frá fyrra ári og herbergjanýting á hótelum félagsins var 60,7% en var 55,8% í fyrra.

Farþegum í innanlandsflugi og Grænlandsflugi fækkaði. Þeir voru tæplega 18 þúsund, um 3% færri en á síðasta ári. jbe@mbl.is