Gylfi Ingvarsson
Gylfi Ingvarsson
Samningafundur starfsmanna álversins í Straumsvík og viðsemjenda þeirra í gærmorgun stóð stutt yfir. Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmannanna, segir að fulltrúar álversins hafi ekki haft neinn nýjan boðskap frá höfuðstöðvunum.

Samningafundur starfsmanna álversins í Straumsvík og viðsemjenda þeirra í gærmorgun stóð stutt yfir. Gylfi Ingvarsson, talsmaður starfsmannanna, segir að fulltrúar álversins hafi ekki haft neinn nýjan boðskap frá höfuðstöðvunum. Það hafi lítið upp á sig að boða til nýs fundar á meðan sú sé staðan.

Fundurinn stóð yfir í stundarfjórðung.

Í framhaldinu segir Gylfi að starfsmenn séu að ræða stöðuna og skoða hvernig hægt sé að skapa þrýsting á fyrirtækið um að gera sambærilegan kjarasamning og gerður var á almennum markaði.

„Það er verið að móta stefnu í íslensku samfélagi sem yfirlýsing Rio Tinto gengur þvert á,“ segir Gylfi.

Engir frekari fundir hafa verið ákveðnir í kjaradeilunni.