— Morgunblaðið/RAX
Í mörgum leikskólum landsins fengu börnin að snæða þorramat í tilefni bóndadagsins sem markar upphaf þorrans og buðu jafnvel karlmönnum í fjölskyldunni með. Í leikskólanum Fögrubrekku í Kópavogi snæddu þessir feðgar hákarl.
Í mörgum leikskólum landsins fengu börnin að snæða þorramat í tilefni bóndadagsins sem markar upphaf þorrans og buðu jafnvel karlmönnum í fjölskyldunni með. Í leikskólanum Fögrubrekku í Kópavogi snæddu þessir feðgar hákarl. Sitt sýnist hverjum um ágæti matarins en börnin eru flest forvitin um matinn og vilja smakka, hvort sem bitinn ratar alla leið ofan í maga eða er skilað fljótlega eftir það.