Stephany Mayor
Stephany Mayor
Kvennalið Þórs/KA sem leikur í Pepsi-deildinni hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir sumarið en félagið samdi við mexíkósku landsliðskonuna Stephany Mayor.

Kvennalið Þórs/KA sem leikur í Pepsi-deildinni hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir sumarið en félagið samdi við mexíkósku landsliðskonuna Stephany Mayor.

Mayor, sem er 25 ára gamall framherji, er önnur landsliðskonan sem Þór/KA fær til sín á skömmum tíma en félagið fékk markvörðinn Cecilia Santiago á dögunum. Mayor spilar sem framherji en til gamans má geta að hún lék ásamt Ceciliu á HM sem fór fram á síðasta ári.