[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Kaupsýslumaðurinn Hreiðar Már Sigurðsson hefur á undanförnum árum byggt upp keðju hótela víðsvegar um landið. Þá hefur félag tengt viðskiptafélaga hans, Ólafi Ólafssyni, sótt um leyfi fyrir stóru hóteli í...

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Kaupsýslumaðurinn Hreiðar Már Sigurðsson hefur á undanförnum árum byggt upp keðju hótela víðsvegar um landið. Þá hefur félag tengt viðskiptafélaga hans, Ólafi Ólafssyni, sótt um leyfi fyrir stóru hóteli í Reykjavík.

Saman tengjast þeir átta hótelum, eða gistiheimilum, um land allt.

Eiginkona Hreiðars Más, Anna Lísa Sigurjónsdóttir, er framkvæmdastjóri eignarhaldsfélagsins Gistivers. Bæði eru þau skráð með lögheimili í Lúxemborg.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá Creditinfo er Anna Lísa skráð fyrir 99% hlut í Gistiveri en 1% hlutur í félaginu er skráður í eigu eignarhaldsfélagsins Valens, sem er líka í hennar eigu. Síðarnefnda félagið heitir líklega í höfuðið á Rómarkeisara (364-378) sem féll í orrustu við Gota.

Hótel Hengill verður lúxushótel

Samkvæmt vefsíðu Gistivers hóf Gréta Sigurðardóttir, móðir Hreiðars Más, rekstur félagsins árið 2009 með heimagistingunni Bænir og brauð. Á sama vef segir að Gistiver hafi árið 2011 eignast helmingshlut í Hótel Hengli á Nesjavöllum. Hótelinu var gerbreytt árið 2012 með endurhönnun og heitir nú Ion Luxury Adventure Hotel. Gistiver á helmingshlut í nýja hótelinu, en viðskiptafélagar þeirra Hreiðars Más og Önnu Lísu, hjónin Sigurlaug S. Hafsteinsdóttir og Halldór Hafsteinsson, eiga bæði 25% hlut í hótelinu.

Það gerðist svo vorið 2012 að Gistiver gerði upp Hótel Egilsen í Stykkishólmi og er það bæjarprýði.

Samkvæmt vefsíðu Gistivers hefur félagið átt helmingshlut í Hótel Búðum síðan árið 2013. Félagið gerði svo upp heimagistinguna Bænir og brauð í Stykkishólmi árið 2014. Árið 2014 opnaði Gistiver þvottahúsið Sængurver í Stykkishólmi.

Samkvæmt vefsíðu Gistivers eignaðist ION hotel ehf. hostelið Reykjavík Backpackers að fullu vorið 2015. Það er sem fyrr segir í helmingseigu Gistivers. Unnið er að því að breyta hostelinu í hótel.

Sama ár keypti Gistiver Hótel Berg í Keflavík.

Þarf ekki að vera tæmandi listi

Gistiver rekur því nú sex gististaði, þrjá í Stykkishólmi og einn á Nesjavöllum, Búðum og í Keflavík.

Ofangreind tímalína byggist sem áður segir á vefsíðu Gistivers. Þær upplýsingar eru nýrri en hluti af ýmsu því sem birt er um félögin á vef Creditinfo. Sýnir grafið hér að ofan tengsl Hreiðars Más og Ólafs við hótelrekstur eins og þau birtast í gögnum á umræddum vef og fyrirtækjaskrá Creditinfo. Jafnframt voru fyrirtækjaskrá og fundargerðir byggingarfulltrúa Reykjavíkur hafðar til hliðsjónar. Ekki er víst að listinn sé tæmandi.

Samkvæmt fyrirtækjaskrá Creditinfo er viðskiptafélagi Hreiðars Más og Önnu Lísu áðurnefndur Halldór Hafsteinsson, meðstjórnandi í félögunum Iceland Backpackers og Reykjavík Backpackers. Þau félög hafa heimilisfangið Síðumúli 29 en þar er skráður fjöldi félaga sem Halldór tengist.

Keyptu Reykjavík Backpackers

Halldór er jafnframt skráður meðstjórnandi hjá Akureyri Backpackers. Samkvæmt fyrirtækjaskrá Creditinfo á Reykjavík Backpackers helmingshlut í Akureyri Backpackers. Út frá því má álykta að Gistiver tengist líka rekstri hostelsins á Akureyri, í kjölfar yfirtökunnar á Reykjavík Backpackers vorið 2015. Virðist Akureyri Backpackers vera sjöundi gististaðurinn sem Gistiver tengist í gegnum eignarhald.

Skal tekið fram að í árslok 2014 var Reykjavík Backpackers skráð í 100% eigu Iceland Backpackers, sem aftur var í helmingseigu félagsins Wings Capital. Það félag er skráð í eigu Halldórs og viðskiptafélaga hans Davíðs Mássonar. Þessar upplýsingar á vef Creditinfo um eignarhaldið eru hins vegar eldri en upplýsingarnar á vef Gistivers og eru þær síðarnefndu því hér hafðar sem heimild. Þess má geta að Reykjavík Backpackers er skráð á Laugavegi 28. Samkvæmt fasteignaskrá er það húsnæði skráð á BP fasteignir. Þeir félagar Halldór og Davíð eiga saman helmingshlut í félaginu. Á LinkedIn-síðu Halldórs segir að hann hafi verið fjármálastjóri Air Atlanta Icelandic 2003-7 og sé nú meðeigandi í félaginu Avion Capital Partners.

Húseignin sem Akureyri Backpackers er skráð á, Hafnarstræti 98, er hins vegar skráð í eigu félagsins H98 ehf. í fasteignaskrá. Það félag er í 100% eigu KEA svf. Upplýsingar um hluthafa í KEA svf. eru ekki aðgengilegar á vef Creditinfo.

Stórhýsi og franskur búgarður

Eins og fjallað var um í Morgunblaðinu sl. fimmtudag hafa eigendur fasteignarinnar Suðurlandsbraut 18 sótt um leyfi til að breyta húsinu í hótel. Samkvæmt fasteignaskrá er húseignin í eigu eignarhaldsfélagsins Festis. Í fyrirtækjaskrá Creditinfo er það félag skráð í 100% eigu hollenska félagsins SMT Partners B.V. Samkvæmt hollensku fyrirtækjaskránni, Kamer van Koophandel, hefur félagið SMT Partners B.V. sama heimilisfang og Samskip Holding B.V. í Rotterdam. Á vef Samskipa er Ólafur skráður hjá Samskip Holding B.V.

Þess má geta að eiginkona Ólafs, Ingibjörg Kristjánsdóttir, er á vef Creditinfo skráð fyrir 100% hlut í eignarhaldsfélaginu Miðhrauni sem heitir eftir jörð þeirra hjóna á Snæfellsnesi. Félagið hefur sama heimilisfang og Samskip í Reykjavík.

Samkvæmt vefsíðu franska félagsins Pur Cheval tengist rekstur Huilerie-búgarðsins, um 160 km suður af París, rekstrinum í Miðhrauni. Ýmsar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á franska búgarðinum, m.a. gerð skeiðvallar. Þau Ingibjörg og Ólafur hafa lögheimili í Sviss.