MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 12. til 20. janúar 2016. Samkvæmt könnuninni jókst fylgi Pírata um 2,6 prósentustig og mældist nú 37,8%.

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 12. til 20. janúar 2016. Samkvæmt könnuninni jókst fylgi Pírata um 2,6 prósentustig og mældist nú 37,8%. Fylgi Sjálfstæðisflokks og Framsóknar hefur farið minnkandi síðustu tvær kannanir á sama tíma og fylgi Samfylkingar og Bjartrar framtíðar hefur verið sveiflukennt og fylgi Vinstri grænna hefur þokast upp á við. Breytingar á fylgi flokka voru í öllum tilfellum innan vikmarka frá síðustu könnun, samkvæmt frétt MMR.

Athygli vekur að MMR spurði sérstaklega um stuðning við Sturlu Jónsson, vörubílstjóra og reyndist 1% aðspurðra styðja Sturlu, eða næstum því fjórðungur á við þá sem segjast styðja Bjarta framtíð, en það voru 4,4% aðspurðra.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 19,5% en hafði verið 20,6% í síðustu könnun (18. desember) og 22,9% í könnuninni þar áður (7. desember). Fylgi Framsóknarflokksins mældist 10,0% en hafði verið 11,5% í síðustu könnun og 12,9% í könnuninni þar áður. Fylgi Vinstri grænna mældist nú 12,5% en hafði verið 11,4% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,4% en hafði verið 12,9% í síðustu könnun og 9,4% þar áður. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist 4,4% nú en hafði verið 5,3% í síðustu könnun og 4,6% þar áður. Fylgi annarra flokka mældist um og undir 1%. agnes@mbl.is